Margrét Rós, lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu fallega og vel skipulagða 4ra herbergja endaíbúð ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Rekagranda 7 í Vesturbæ Reykjavíkur. Um er að ræða bjarta og fjölskylduvæna eign sem skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, rúmgott eldhús, samliggjandi stofu og borðstofu með útgengi á svalir til suðvesturs. Úr hjónaherbergi er útgengt á aðrar svalir til austurs. Eigninni fylgir sér geymsla í kjallara. Vel staðsett eign þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir, Granda, Ægissíðu og fjölbreytt útivistarsvæði við sjávarsíðuna. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós lgf. s. 856-5858 eða margret@fstorg.is. *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** Birt stærð eignar skv. HMS er 125,7 m², þar af er íbúðin 98,9 m² og sér stæði í bílageymslu skráð 26,8 m² - Sérgeymsla sem tilheyrir eigninni er ekki innan fermetratölu.Forstofa/gangur: Flísar á gólfi og fataskápur. Rúmgóður gangur með parket á gólfi tengir saman öll rými íbúðarinnar.
Eldhús: Rúmgott með parket á gólfi, fallegri innréttingu, góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu. Helluborð, bakarofn í vinnuhæð og gufugleypir. Eldhús er opið á tvo vegu við stofu og borðstofu sem skapar gott flæði í alrými eignarinnar.
Stofa og borðstofa: Samliggjandi í björtu og rúmgóðu alrými með parketi á gólfi. Frá stofu er útgengt á rúmgóðar suðvestursvalir
Svefnherbergin: Þrjú parketlögð svefnherbergi, öll rúmgóð og með fataskápum.Úr hjónaherbergi er útgengt á austursvalir.
Baðherbergi: Flísalagt með hvítri innréttingu við handlaug, baðkari með sturtuaðstöðu, upphengdu salerni, handklæðaofni og opnanlegum glugga. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sérgeymsla fylgir eigninni sem ekki er inn í fermetratölu íbúðar og er staðsett á sameignargangi í kjallara hússins.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Bílageymsla: Sér bílastæði í lokaðri bílageymslu með sjálfvirkum hurðaopnara og sameiginlegri þvottaaðstöðu.
FÁÐU FRÍTT VERÐMAT Á ÞÍNA EIGN HÉRFramkvæmdir og viðhald á íbúð að sögn seljanda:- Eldhúsið endurnýjað að hluta með nýrri borðplötu, vaski, helluborði, bakarofni og viðbót við eldhúsinnréttingu (2025)
- Nýtt parket lagt á öll rými íbúðar að undanskyldu baðherbergi (2025)
- Setti eldvarnarhurð í inngang íbúðar (2015)
- Innihurðir í íbúð endurnýjaðar (2017)
Framkvæmdir og viðhald á húsi að sögn seljanda:- Útitröppur lagfærðar (2025)
Falleg eign á eftirsóttum stað í Vesturbænum, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, verslanir, veitingastaði og kaffihús á Granda, sundlaug, íþróttasvæði og fallegar göngu- og hjólaleiðir meðfram sjávarsíðunni. Hér sameinast rólegt og fjölskylduvænt hverfi með einstakri nálægð við miðborgina og allt það sem hún hefur upp á að bjóða.
Nánari upplýsingar veita:Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s.
856-5858 /
margret@fstorg.isAðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s.773-3532 / adalsteinn@fstorg.is
KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉRUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.