Fasteignaleitin
Skráð 9. júní 2025
Deila eign
Deila

Breiðvangur 79

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
171.2 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
130.000.000 kr.
Fermetraverð
759.346 kr./m2
Fasteignamat
109.600.000 kr.
Brunabótamat
92.100.000 kr.
Mynd af Ólafur Gísli Sveinbjörnsson
Ólafur Gísli Sveinbjörnsson
Löggiltur Fasteignasali
Byggt 1975
Þvottahús
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2074127
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt - endurnýjað að hluta
Raflagnir
Upprunalegt að hluta
Frárennslislagnir
Ekki þekkt.
Gluggar / Gler
Gott
Þak
Endurnýjað járn og pappi.
Svalir
Viðarpallar
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Höfn fasteignasala kynnir, í einkasölu:

Breiðvangur 79, Hafnarfirði.

Sérlega fallegt endaraðhús með bílskúr, innst í götu og stutt í ósnortna náttúru.
Eign sem hefur verið einstaklega vel viðhaldið og mikið endurnýjuð á síðustu árum. Glæsilegt eldhús með miklu skápaplássi og granít á borðum. Eldhúseyja skilur á milli eldhús og stofu. Útgengt í garðinn úr stofunni. Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru öll á sér svefnherbergisgangi. Þar er einnig stórt baðherbergi sem hefur bæði sturtu og baðkar. Gestasalerni er inn af forstofu. Einstaklega vel skipulagt og fallegt endaraðhús þar sem vandað hefur verið til verka í hverju smáatriði. Fallegar gönguleiðir í nánasta umhverfi.

Nánari upplýsingar veitr Ólafur G. Sveinbjörnsson, löggiltur fasteignasali hjá Höfn fasteignasölu í síma 822-8283 - olafur@fasthofn.is
Bókið skoðun hjá Katrínu í s. 699-6617.

Nánari lýsing fasteignar:

Komið er inn í rúmgóða forstofu með fataskápum.
Gestasalerni er inn af forstofu með salerni og vaski sem er á lítilli innréttingu. Flísalagt í hólf og gólf. Stór stofa sem er parketlögð og samliggjandi með nýuppgerðu eldhúsi. Frá stofu er útgent í fallegan garð.
Eldhúsið hefur verið nýlega endurnýjað. Innréttngar frá Kvik, granít borðplötur og Simens eldhústæki, bakaraofn, örbylgjuofn og spanhelluborð. Flísar á gólfum. Mikið skápapláss og virkilega góð vinnuaðstaða. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingunni. Eldhúseyja skilur á milli eldhúss og stofu.
Þvottahús er inn af eldhúsi og er það mjög rúmgott og með fínu vinnuplássi. Þaðan er útgengt á fallegan afgirtann pall sem er fyrir framan húsið. Búið er að endurnýja glugga og gler í eldhúsi, þvottahúsi og á gestasalerni.
Þrjú svefnherbergi eru á sér svefnherbergisgangi.
Hjónaherbergi er með upprunalegum skápum og þaðan er útgent út í garðinn.
Svefnherbergi 1 er rúmgott herbergi með glugga sem snýr út í garðinn.
Svefnherbergi 2 var áður tvö minni herbergi en léttur veggur var tekin niður á milli herbergja og því er skipulagið núna eitt stórt herbergi með fataskápum og tveimur stórum gluggum.
Baðherbergið er rúmgott með sturtu og stóru baðkari. Upphengt salerni og vaskur í fallegri hvítri innréttngu. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf.
Bílskúrinn er stór og geymsla er í enda skúrsins. Frá skúrnum er einnig útgengt í garðinn. 
Búið er að setja upp stóra viðarverönd með skjólveggjum fyrir framan húsið.

Breiðvangur 79 er einstaklega vel viðhaldið endaraðhús og ber vott um að hafa fengið gott viðhald alla tíð. Mikið endurnýjað að innan á síðustu árum.

Allar nánari upplýsingar hjá Ólafi G. Sveinbjörnssyni, löggiltum fasteignasala hjá Höfn fasteignasölu, í síma 822-8283 eða olafur@fasthofn.is.
Bókið skoðun hjá Katrínu í s. 699-6617.

Upplýsingar seljanda um framkvæmdir á Breiðvangi 79, 220 Hafnarfjörður.

Framkvæmdir að utan:
• 2016 Epoxygólf á bílskúr
• 2019 Pallur að framan
• 2019 Útihús 16 fermetrar
• 2021 Húsið múrað að framanverður og málað. Skipt um hurð og glugga í þvottahúsi, skipt um glugga
í eldhúsi og gestaklósetti.
2022 Endurnýjað allt þakjárn (aluzink) og pappi extra þykkur með bræddum samskeytum.
2022 Þakkantur endurnýjaður að hluta
2025 Tröppur múraðar að frama
2025 Múr viðgerðir á bílskúr og aftanverður húsinu
2025 Hús málað að utan.
Framkvæmdir að innan:
2016 Parket lagt á sameiginleg rými og svefnherbergi 
2017• Endurnýjað allt baðherbergið • Hiti settur í gólf og flísað
2021 Eldhús: 
• Ný eldhúsinnrétting, granít borðplötur og öll tæki Simens • Hiti settur í gólf og flísað
• Loft tekið niður að hluta og endurnýjuð ljós
2021• Þvottahús. Hiti settur í gólf og flísað
2021• Gestasalerni endurnýjað allt salernið • Hiti settur í gólf og flísað 2021 - Forstofuherbergi:• Hiti settur í gólf og flísað
2025 Skipt um allar innihurðir

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Höfn fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stmpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3.Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.Umsýslugjald Höfn fasteignasölu skv. þjónustusamningi
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/11/201853.200.000 kr.33.700.000 kr.171.2 m2196.845 kr.Nei
22/02/201641.650.000 kr.51.000.000 kr.171.2 m2297.897 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sléttahraun 20
Bílskúr
Skoða eignina Sléttahraun 20
Sléttahraun 20
220 Hafnarfjörður
199.9 m2
Hæð
414
600 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Staðarhvammur 11
Staðarhvammur 11
220 Hafnarfjörður
231 m2
Raðhús
614
588 þ.kr./m2
135.900.000 kr.
Skoða eignina Breiðvangur 68
Skoða eignina Breiðvangur 68
Breiðvangur 68
220 Hafnarfjörður
205.2 m2
Hæð
715
609 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunkambur 3
3D Sýn
Skoða eignina Hraunkambur 3
Hraunkambur 3
220 Hafnarfjörður
139.3 m2
Einbýlishús
514
897 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin