Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 4-5 herb. sérhæð í þríbýli að Kambsvegi 19 í Reykjavík. Garður er gróinn með m.a. hindberjum, rifsberjum, sólberjum, eplatré o.fl. Gerðurinn er allur í sameign og eru þrjú bílastæði innan lóðar. Húsið er nýmúrviðgert og málað og skipt hefur verið um alla glugga. Húsið er í rólegu hverfi þar sem göngufæri er í leik- og grunnskóla. Einnig er stutt í Laugardalinn í allri sinni dýrð og Sæbrautina til að komast í og úr hverfinu.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslur. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 97,1 m2. **HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI. KÍKTU Í HEIMSÓKN !*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SKOÐUN MIÐVIKUD. 22. OKT. Söluyfirlit má nálgast hérNánari lýsing:
Forstofa er inn af sameiginlegum inngangi með íbúð í risi. Innan íbúðar er komið inn á flísalagt forstofuhol. Svartur fataskápur með spegli er inni á holi.
Stofa og borðstofa er tvískipt rými og væri möguleiki að útbúa herbergi í hluta af stofu. Gluggar eru á tvo vegu, þrjú opnanleg fög. Parket á gólfi.
Eldhús er með hvítri innréttingu á tveimur veggjum. Nýleg innrétting á öðrum vegg, borðplötur og fibotrespo veggplötur á milli efri og neðri skápa. Stæði er fyrir uppþvottavél. Lítið felliborð er undir glugga. Ljósar gólfflísar.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Hvítar flísar upp veggi og dökkar gólfflísar. Hvít skápaeining undir svarti handlaug og borði. Baðkar og upphengt salerni.
Herbergi I er með nýjum tvöföldum fataskáp með spegli. Parket á gólfi.
Herbergi II er með nýjum tvöföldum fataskáp með spegli. Inni í herberginu er lítil geymsla. Milli þessa herbergis og næsta er hurð og hægt að hafa opið á milli þeirra. Parket á gólfi.
Herbergi III er í raun forstofuherbergi, en er nýtt í dag sem framlengin af öðru herbergi. Gluggar eru á tvo vegu og opanlegt fag á báðum. Tvöfaldur hvítur fataskápur. Parket á gólfi.
Þvottahús er í sameign í kjallara.
Geymsla er sér í kjallara. Einnig er auka geymslurými sem tilheyrir.
Hlutfall eignar í húsi og lóð er 41,35%.
Fasteignamat eignar árið 2026: 75.450.000 kr.
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-