Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Mýrarveg 12, 311 Borgarbyggð.
Um er að ræða Sumarbústað á 8.500 fm eignarlóð í landi Galtarholts í Borgarbyggð. Er inn á skipulögðu sumarhúsasvæði sem heitir Stekkjarás.
Stærð: 62,7m2 + 4m2 geymsluskúr (óskrá hjá HMS), samtals 66,7m2
Byggingarár skráð 2009, stækkun og miklar endurbætur árin 2020-2022. Allt húsið einangrað upp á nýtt og klætt með aluzink klæðningu. Þakið klætt með lituði bárustáli.
Nánari lýsing:Komið er inn í gang/anddyri, stórt svefnherbergi á vinstri hönd, á hærgi hönd er minna svefnherbergi, fatahengi og baðherbergi með WC, baðinnréttingu, sturtu og 300 lítra hitakút. Stórt geymsluloft er yfir þessum rýmum. Síðan er komið inn í stórt alrými, stofu og eldhús. Varmadæla hitar upp bústaðinn en einnig er kamína í stofunni og rafmagnsofnar í svefnherbergjum og baði.
Umhverfis bústaðinn er fallegur birkiskógur og bláberjamór.
Bústaðurinn er á 8.500m2 eignarlóð með mjög góðu útsýni. Eigendur hafa gróðursett mikið á síðustu 20 árum. Á lóðinni er matjurtabeð og einnig flaggstöng ásamt stóru og góðu bílastæði. Ca. 50m2 sólpallur
Sameign sumarbústaðasvæðisins, s.s. girðingar, vegir (3km), lagnir og land (tæpir 20 hektarar) fylgir með í hlutfallinu 1/41 sem þýðir að allar lóðir fá jafna skiptingu landsins.
Lokað/læst hlið er inn á svæðið.
10-15 mín. akstur frá Borgarnesi (15km) og ca. 1 klst frá Reykjavík (90km).
Stutt í sundlaug á Varmalandi, 5 mín akstur í bensínstöð og sjoppu (Baula), stutt í golf á Hamri og Glanna. Stutt í allar helstu nátturuperlur Borgafjarðar. Danílslundur í göngufæri
Gönguleiðir, styttri og lengri eru frá bústaðnum. Fagurt útsýni á fjallgarða og jökla Borgarfjarða, s.s. Skessuhorn, Hafnarfjall, Eiríksjökul, Langjökul ofl.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050 eða á netfangið: es@es.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4%
ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr.
3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar
á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, skv. gjaldskrá.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.