LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir fallegt og fjölskylduvænt 229,9 m2 5.herbergja endaraðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr við Kvíslartungu 112 í Mosfellsbæ með fallegu útsýni. Birt stærð eignarinnar er 229,9 m2, þar af er íbúðarhluti 205,4 m2 og sambyggður bílskúr 24,5 m2.
Á efri hæð er stofa, borðstofa, eldhús, hjónaherbergi með fataherbergi, sjónvarpshol (hægt að breyta í svefnherbergi) og baðherbergi. Stórar svalir til suðvesturs með fallegu útsýni. Á jarðhæð eru 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, geymsla, gangur, forstofa og bílskúr.
Vel skipulögð eign á góðum stað í Leirvogstunguhverfi, stutt í leikskóla, vinsælar gönguleiðir og útivistarsvæði. Nánari lýsing efri hæðarStofa og borðstofa með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á stórar svalir í suðvesturátt með fallegu útsýni.
Eldhús með parketi á gólfi og hvítri L-laga eldhúsinnréttingu með góðu skápaplássi, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni, helluborði og viftu. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskápum. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi (notað sem skrifstofa í dag).
Sjónvarpshol er inn af stofu með parketi á gólfi. Hægt að loka og breyta í fimmta svefnherbergið.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, innréttingu, handlaug, vegghengdu salerni, handklæðaofni og 'walk in' sturtu. Gluggi er á baðherbergi.
Nánari lýsing neðri hæðar
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp. Úr forstofu er gengið inn í bílskúr.
Barnaherbergi (1) með með parketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergi (2) með með parketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergi (3) með með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi flísalögðu gólfi og veggjum, innréttingu, handlaug, vegghengdu salerni, handklæðaofni og baðkari með sturtuaðstöðu. Gluggi er á baðherbergi.
Þvottahús með innréttingu og flísum á gólfi. Í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gluggi er á þvottahúsi.
Geymsla með flísum á gólfi er inn af þvottahúsi. Gluggi er á geymslu.
Gangur með parketi á gólfi. Útgengt í garð aftan við hús.
Bílskúr með epxoý á gólfi og rafdrifinn bílskúrshurðaropnara.
Steypt plan er framan við hús, upphitað á lokuðu kerfi. Lóð er að öðru leyti grófjöfnuð. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl er við bílastæði.
Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is