ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Aðalgata 16, mjög mikið endurnýjað einbýslihús með þremur svefnherbergjum. Eignin stendur á 545 fm eignarlóð.
Nánari upplýsingar veitaPáll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma
560-5501, tölvupóstur
pall@allt.is.Helgi Bjartur Þorvarðarson Löggiltur fasteignasali/lögfræðingur í síma
770-2023, tölvupóstur
helgi@allt.isHúsið var allt tekið að innan árið 2022/2023. Öll eignin var gerð fokheld, þak var tekið af eigninni og endurnýjað að fullu. Innra skipulag var breytt að, allar raflagnir og tafla endurnýjuð, endurnýjuð allar vatnslagnir, endurnýjað frárennsli út í brunn. Innveggir, hurðar, innréttinar gólfefni, eldhús og baðherbergi. Allir gluggar og útidyrahurðar endurnýjaðar.
Mjög fallegt einbýlishús, opið rúmgott rými með stofu, borðstofu, eldhúsi og útgengni þar út á baklóð. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi.
Lóð er frágengin að mestu, verið er að vinna við sólpall og skilast hann klár ásamt því að búið verðu að reysa geymsluhús á sólpalli.
Forstofa flísalögð með speglaskáp
Stofa / sjónvarpsrými á upphækkun
Borðstofa og eldhús með parketi. Nýjar innréttingar og tæki, helluborð með gufugleypi. Útgengi út á sólpall á baklóð
Hjónaherbergi með skáp og gluggum á tvo vegu
Barnaherbergin eru tvö bæði með skápum
Baðherbergi er flísalagt, hvít innrétting með niðurfelldum vaski, skáp, innbyggt salerni, walk in sturtu og glugga.
Lóð er
eignalóð, malarborið bílaplan, hellulögð göngustétt. Tyrfðir grasbalar, stór sólpallur.
Skv deiluskipulagi er byggingareiturinn skilgreindur sem íbúðarreitur og miðbæjarsvæði. Bílskúrar geta tengst einstaka húsum. Lóðirnar 16-18-20 flokkast undir miðbæjarsvæði. Nánari upplýsingar um byggingarmagn og hæðarkvóta bendum við á skipulagssvið Reykjanesbæjar.
Sjá deiluskipulag svæði A "Gamli Bærinn með því að smella HÉR.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.