Fasteignaleitin
Skráð 13. nóv. 2026

Bakkabraut 11 íb504

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
179.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
260.000.000 kr.
Fermetraverð
1.445.247 kr./m2
Fasteignamat
2 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Jarðhæð · efsta
Garður
Svalir
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2242821_504
Landnúmer
178919
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilega Penthouse-íbúð í nýju fjölbýlishúsi með fallegu sjávarútsýni og einstaklega veglegum 108 m² þaksvölum þar sem njóta má sólar frá morgni til kvölds. Íbúðin er við Bakkabraut 11, merkt 0504, á 5. hæð (efstu). Eignin er staðsett við sjávarsíðuna á Kársnesi, í næsta nágrenni við smábátahöfnina. Íbúðin er björt og rúmgóð, með gólfsíðum gluggum, mikilli lofthæð, þremur svefnherbergjum, þar af hjónasvítu með fataherbergi og sérbaðherbergi, auk annars baðherbergis, rúmgott alrýmismeð stofu, borðstofu, sjónvarpsstofu og eldhúsi, búrs, sérþvottahúss og forstofu. Eignin er samtals 179,9 m², þar af er íbúðin 167,3 m² og sérgeymsla í kjallara 12,6 m². Eigninni fylgja tvö bílastæði í bílakjallara, merkt B15 og B16. Íbúðin er eingöngu sýnd í einkasýningum. Gert er ráð fyrir afhendingu vorið 2027.

Allar nánari uppl. veitir Margrét Rós fasteignasali í GSM: 856-5858 netfang margret@fstorg.is 


Nánari lýsing íbúðar 504: Gengið er inn í forstofu með góðu skápaplássi. Þaðan er komið inn í bjart og opið alrými þar sem rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús með eyju mynda fallega heild. Í stofunni er möguleiki á eldstæði og stórir gluggar hleypa mikilli birtu inn í rýmið. Frá alrýminu er útgengt á einstaklega rúmgóðar 108 m² þaksvalir sem liggja meðfram tveimur hliðum íbúðarinnar og bjóða upp á fjölbreytta útiaðstöðu og möguleika á að njóta sólar á mismunandi tímum dags. Þar er jafnframt möguleiki á heitum potti. Sjónvarpsstofa er í tengslum við alrýmið og býður upp á notalega setuaðstöðu. Svefnherbergin eru þrjú, þar af rúmgóð hjónasvíta með innangengu fataherbergi, sérbaðherbergi og útgengi á þaksvalir. Hin svefnherbergin eru tvö og bæði rúmgóð. Auk þess er annað baðherbergi, sérþvottahús og búr innan íbúðar.

Afhending íbúðar 504: Íbúðin afhendist tilbúin til innréttinga og miðast ásett verð við þau skil, sjá nánar skilalýsingu seljanda. Einnig er hægt að fá íbúðina fullbúna án gólfefna, samkvæmt skilalýsingu. Ásett verð miðað við fullbúna íbúð er 285.000.000 kr. Hægt er að velja á milli tveggja hönnunarþema, Steins eða Yls. Kaupendur geta haft áhrif á efnisval og skipulag íbúðar komi þeir snemma að kaupum. Allar nánari uppl. veitir Margrét Rós fasteignasali í GSM: 856-5858 netfang margret@fstorg.is 

Sjá nánari upplýsingar um verkefnið á sölusíðu Vesturbakka.


Nánar um Vesturbakka verkefnið: Við Vesturbakka rísa 118 vandaðar íbúðir, þar sem fágaður arkitektúr, tímalaus hönnun og nútímaþægindi fara saman. Íbúðirnar eru fjölbreyttar og einkennast af vel útfærðu skipulagi og vönduðu efnisvali. Vesturbakki stendur við Kársneshöfn, þar sem framtíðarsýn Kópavogsbæjar fyrir svæðið er að taka á sig mynd. Í skipulagi er meðal annars gert ráð fyrir veitingastað og aðstöðu til sjósunds, sem munu stuðla að lifandi og aðlaðandi hafnarsvæði.

Sameiginleg aðstaða til afþreyingar og vellíðunar verður á 1. hæð við Vesturbakka 21b og stendur íbúum hússins til boða. Þar verður vönduð líkamsræktaraðstaða, sauna og útisvæði með heitum og köldum potti. Jafnframt verður þar golfhermir og aðstaða til pílukasts. Í bílakjallara verða 103 sérmerkt bílastæði og á lóð hússins verða 58 bílastæði til viðbótar.

Við hönnun bygginganna er lögð áhersla á þægindi og góða innivist, meðal annars með vönduðu byggingarefnavali. Allar íbúðir verða með gólfhita og sérstöku loftskiptakerfi, sem stuðlar að góðum loftgæðum.

Við fullbúin skil verða íbúðirnar útfærðar samkvæmt hönnunarþemunum Yl eða Steini, með innréttingum frá Parka eða Voke III og heimilistækjum frá Siemens. Helluborð verður með innbyggðri viftu og möguleika á þráðlausri fjarstýringu. Útfærsla eldhústækja verður mismunandi eftir íbúðum, en þar verða meðal annars sambyggðir baksturs- og örbylgjuofnar, frystar og vínkælar. Í íbúðunum verður einnig free@home hússtjórnunarkerfi, sem gerir íbúum kleift að stýra meðal annars hitastigi, lýsingu og gardínum. Tæknimaður kemur í hverja íbúð til að stilla kerfið og leiðbeina íbúum um notkun þess.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
2242821_504
Fasteignanúmer
2242821_504

Myndir (21)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bakkabraut 11 - 504
Bílastæði
Efsta hæð
Bakkabraut 11 - 504
200 Kópavogur
167,3 m2
Fjölbýlishús
423
1554 þ.kr./m2
260.000.000 kr.
Skoða eignina Álfhólsvegur 47
Bílskúr
Álfhólsvegur 47
200 Kópavogur
152,8 m2
Hæð
514
732 þ.kr./m2
111.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 18
Opið hús:14. nóv. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Hafnarbraut 18
Hafnarbraut 18
200 Kópavogur
87,9 m2
Fjölbýlishús
32
966 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Sunnusmári 4 - Efsta hæð
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:19. nóv. kl 17:00-17:30
Sunnusmári 4 - Efsta hæð
201 Kópavogur
87,9 m2
Fjölbýlishús
312
909 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin