SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
GLÆSILEGA LÚXUSÍBÚÐ Á EINUM EFTIRSÓTTASTA STAÐ LAS COLINAS GOLFVALLARINS
EINSTAKT GOLF-, NÁTTÚRU- OG SJÁVARÚTSÝNI
Sérlega glæsileg og vönduð lúxusíbúð á einum besta útsýnisstaðnum á Las Colinas golfvellinum með stórkostlegu útsýni yfir margverðlaunaðan golfvöllinn, fallegt skógi vaxið landslag og Miðjarðarhafið í fjarska.
Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði Spánar nokkur ár í röð og er talið eitt glæsilegasta golf- og íbúðasvæði Evrópu. Einstakt náttúruumhverfi, fyrsta flokks þjónusta og afar lítil uppbygging gera svæðið að eftirsóttum stað fyrir þá sem vilja njóta lífsins við bestu aðstæður. Aðeins um klukkustundar akstur er frá Alicante flugvelli.
Um er að ræða sérlega rúmgóða og fallega hannaða íbúð með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, stórri stofu, borðstofu og opnu eldhúsi þar sem gæði og glæsileiki ráða ríkjum. Stórir gluggar og rennihurðir tengja innirýmið við glæsilega verönd sem nýtur stórkostlegs útsýnis yfir golfvöllinn og hið einstaka náttúruumhverfi Las Colinas.
Það er einfaldlega allt við þessa eign sem fellur undir lúxus.
Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. 00354 893 2495, adalheidur@spanareignir.is.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. 0034 615 112 869. berta@spanareignir.is.
LýsingÍbúðin er staðsett í hinu glæsilega Madroño hverfi á Las Colinas golfvellinum og er hönnuð með það að markmiði að sameina nútímalegan glæsileika og þægilegt líf.
Íbúðin skiptist í þrjú rúmgóð svefnherbergi og tvö fallega hönnuð baðherbergi. Hjónasvítan er með sér baðherbergi en hin tvö svefnherbergin deila öðru baðherbergi.
Stór og björt stofa, borðstofa og opið eldhús mynda einstaklega fallegt alrými þar sem stórar rennihurðar opna íbúðina út á rúmgóðar verandir í tvær áttir. Eldhúsið er sérlega glæsilegt með vönduðum innréttingum, eyju og innbyggðu borðsvæði sem hentar jafnt til daglegrar notkunar sem og þegar tekið er á móti gestum.
Fallegir viðarveggir, hlýir jarðlitir og fyrsta flokks efnisval skapa notalegt og glæsilegt yfirbragð.
Frá veröndunum njóta eigendur einstaks útsýnis yfir golfvöllinn, fallega náttúruna og Miðjarðarhafið í fjarska. Hér er einstök aðstaða til að njóta útivistar allt árið um kring.
Sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara og sér geymsla fylgja eigninni.
Glæsilegur sameiginlegur sundlaugargarður.
UmhverfiðLas Colinas býður upp á einstakan lífsstíl.
Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með framúrskarandi veitingastöðum, þjónustumiðstöð, líkamsræktaraðstöðu, göngu- og skokkleiðum og einkastrandklúbbi á Campoamor-ströndinni.
Í næsta nágrenni eru einnig margir af bestu golfvöllum Costa Blanca, svo sem:
La Finca
Campoamor
Las Ramblas
Villamartín
Aðeins um 10 mínútna akstur er niður á Campoamor-ströndina og í verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Þetta er eign fyrir þá sem vilja njóta lífsins til fulls í einstöku umhverfi þar sem náttúra, golf, öryggi og lúxus fara saman.
Íbúðir af þessum gæðum á Las Colinas eru sjaldan í boði og seljast yfirleitt fljótt. Íbúðin er nýleg, en það hefur enginn búið í henni, þannig að hún er eins og ný.
Verð: 849.000 evrur(123.100.000ISK miðað við gengi 1Evra=145ISK)
Íbúð: 3 svefnherbergi + 2 baðherbergi, 145 m²
Stórar verandir
Bílastæði í lokuðum bílakjallara
Sér geymsla
Íbúðin afhendist með
Innbyggðri loftkælingu (hiti/kæling)
Hágæða innréttingum
Innbyggðum fataskápum
Sér bílastæði
Sér geymslu
SKOÐUNARFERÐIRVið aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir.
Við höfum sérhæft okkur í sölu fasteigna á Spáni frá árinu 2001. Það tryggir viðskiptavinum okkar reynslu, öryggi og persónulega þjónustu í gegnum allt kaupferlið.Nánari upplýsingar um fasteignakaup á Spáni má finna á
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin
Ofan á kaupverð leggst 10% IVA (spænskur virðisaukaskattur) auk um 3% kostnaðar vegna stimpilgjalda, lögfræðikostnaðar og annarra gjalda. Heildarkostnaður vegna kaupanna er því að jafnaði um 13%.
Eiginleikar: Útsýni, Golfútsýni, Sjávarútsýni, Verönd, Lyfta, Bílakjallari, Geymsla, Loftkæling, Sameiginlegur sundlaugargarður, Líkamsrækt, Lúxusíbúð,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,