SUÐURGATA 27 HAFNARFIRÐI, EIGNIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING. Hraunhamar fasteignasala og Helgi Jón Harðarson sölustjóri. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is kynna: Glæsilegt og virðulegt og mikið endurnýjað 227 fm einbýli á tveimur hæðum með kjallara við Suðurgötu 27 í Hafnarfirði. Þetta er ein af fallegri eldri eignum í gamla bænum og setur þetta virðulega hús mikin svip á hverfið. Húsið er byggt 1920 en hefur verið mikið endurnýjað og fengið mjög gott viðhald síðustu tvo áratugi. Það er stutt ganga í miðbæinn, grunnskóla, Flensborg ofl. Húsið stendur á fallegri afgirtri hornlóð. Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 154.200.000 Nánari lýsing á efri hæð:Hjónaherbergi: Gott og bjart herbergi með skápum, gegnheilt viðargólf.
Barnaherbergi I: Gott herbergi með skápum, gegnheilt viðargólf.
Barnaherbergi II: Gott herbergi með skápum, gegnheilt viðargólf.
Barnaherbergi III: Þetta herbergi er nýtt sem fataherbergi í dag. Gegnheilt viðargólf.
Baðherbergi: Mikið endurnýjað baðherbergi, upphengt salerni, náttúrusteinn í borði og vask, opin sturta, handklæðaofn. Flísar á gólfi og hluta af veggjum.
Nánari lýsing á neðri hæð:Forstofa: Opin forstofa með rúmgóðum, háum skápum. Flísar á gólfi.
Eldhús: Staðsett í viðbyggingu byggð árið 2007. Vel skipulagt með góðu skápaplássi, gert ráð fyrir stórum ísskáp, gaseldavél, gufugleypir, flísar á gólfi, innfelld lýsing í lofti, útgengt út á sólpall með heitum potti.
Borðstofa: Opið rými sem tengir saman stofu og eldhús. Gegnheilt viðargólf. Gengið niður í kjallara úr borðstofu úr rennihurð.
Stofa: Hlýleg, opin og björt með innfelldri lýsingu, góðri lofthæð, gegnheilt parket á gólfi.
Sjónvarpshol: Gott pláss fyrir góðan fjölskyldusófa, innfelld lýsing, gegnheilt viðargólf.
Sólpallur: Stór og góður sólpallur með heitum potti.
Framkvæmdir og viðhald eignarinnar síðustu ár samkvæmt upplýsingum seljanda:2003 - Húsið er tekið í gegn af núverandi eigendum og í raun gert fokhelt. Skipt um allar lagnir, raflagnir, glugga.
2007 - Byggð viðbygging fyrir eldhús, garður tekin upp og skipt um jarðveg, allar lagnir út í götu nýjar, nýtt dren, hiti í gagnstétt og bílastæði og byggður sólpallur.
2022 - Baðherbergi á efri hæð uppfært og breytt, eldhús uppfært og breytt. Skipt um allar þakrennur og einhverjar þakplötur
2024 - Ný svalahurð
Nánari lýsing á kjallara:Þvottaherbergi: Gengið niður úr borðstofu í þvottahúsið en þarna er minni lofthæð en innar í rýminu. Steypt gólf.
Forstofa/andyri kjallari: Útgangur úr kjallara, góðir hvítir skápar, flísar á gólfi.
Gufa/baðherbergi: Gengið er eitt þrep niður og þá eykst lofthæðin í þessu rými. Þarna má finna sturtu, upphengt salerni og saunu með setrými fyrir framan. Flísar á gólfi.
Þetta er mjög áhugaverð og mikið endurnýjuð eign á þessum rótgróna stað í gamla bænum, í göngufæri við miðbæinn.
Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Freyja M Sigurðardóttir lgf. s. 862-4800 freyja@hraunhamar.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.