Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Kléberg 4 18, 815 Þorlákshöfn:Vel skipulagt og mikið endurnýjað 4ra herbergja einbýlishús með bílskúr. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin samtals 151,6 fm. þar af er íbúðarhluti 117,6 fm. og bílskúr 34 fm. Umhverfis húsið er gróinn garður með norður sólpall og heitum potti. Húsið er einstaklega vel staðsett miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð/sundlaug og verslanir.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXEignin skiptist í anddyri, eldhús / búr, stofa / borðstofa, svefnherbergisgangur, 3 svefnherbergi, baðherbergi, geymsla / gestasalerni, þvottahús, bílskúr og 15 fm. garðhýsi á lóð.
Nánari lýsing: Anddyri: Með hvítum fataskáp, flísar á gólfi.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð, parketi á gólfi.
Eldhús: Endurnýjað 2022. Rúmgott, hvít Ikea eldhúsinnrétting, granít borðplata, tveir bakarofnar, spanhelluborð með innfelldri viftur, innbyggð uppþvottavél og ísskápur, parket á gólfi.
Búr: Hillur, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott, góðir fataskápar, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Með innfelldum hvítum fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Með innfelldum hvítum fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergisgangur: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Endurnýjað 2023. Rúmgott, svört innrétting, ljósaqspegill, upphengt salerni, flísar á gólfi og veggjum.
Geymsla / gestasalerni: Nýtt sem geymsla í dag. Á teikningu var gert ráð fyrir gestasalerni.
Þvottahús: Rúmgott, hillur, útgengi út á baklóð þar sem er ca. 20 fm. sólpallur og heitur rafmagnspottur, flísar á gólfi.
Bílskúr: Innbyggður 34 fm. bílskúr, gönguhurð á vestuhlið, bílskúrshurðaopnari, hillur, epoxy á gólfi.
Húsið: Húsið er steinsteypt og byggt árið 1973.
Lóð: Gróinn lóð. Framan við húsið er hellulögð innkeyrsla, steypt stétt að húsi, gras og fánastöng, á baklóð er ca. 20 fm. norður sólpallur, gras og 15 fm. gesthús sem hægt er að nýta sem herbergi eða geymslu.
Samkvæmt upplýsingum frá seljanda hefur húsið verið endurnýjað töluvert að innan og utan undanfarin ár m.a.:
Íbúð:* 2023 Nýjar hvítar innihurðir frá Birgisson.
* 2023
Baðherbergi endurnýjað. Ný baðherbergiðinnrétting, tæki og flísar á gólfi og veggjum.
* 2022 Nýtt parket og gólflistar.
* 2022
Eldhús endurnýjað. Ný eldhúsinnrétting og ný eldhústæki.
* Nýir fataskápar í hjónaherbergi og anddyri.
* Nýjar gólfflísar í þvottarhús, anddyri og geymslu / gestasalerni.
* Skipt um loftplötur stofu / borðstofu, eldhúsi og svefnherbergisgang. Sett innfelld ljós.
* 2023 Húsið ný málað að utan.
* 2022 Nýtt 15 fermetra gesthús.
* 2022 Heitur rafmagnspottur á sólpallinn.
* 2022 Bílskúr málaður að innan og sett epoxy málning á gólfið. Hillur settar upp.
* 2022-2023 Nýtt bárujárn á húsinu og bílskúrnum.
* Gluggar og gler er endurnýjað að hluta.
Hér er um að ræða virkilega fallega og vel staðsetta eign. Þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.
Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.