Gimli fasteignasala kynnir í einkasölu: Glæsilegt steypt miðjuraðhús með innbyggðum bílskúr í byggingu á einni hæð á frábærum stað í nýju hverfi í Þorlákshöfn.
Um er að ræða 4ra herbergja miðjuraðhús í byggingu með bílskúr, flottum gólfsíðum gluggum í stofu og eldhúsið ásamt rennihurð út í garð.
Húsið er samtal 130,5 fm. Samkvæmt teikningu þá skiptist húsið í forstofu, eldhús og stofu í alrými, 3 svefnherbergi, hjónaherbergi með rennihurð út í garð, baðherbergi/þvottahús með hurð út í garð, bílskúr og geymslu inn af bílskúr.
Húsið afhendist fullbúið að utan og tilbúið til innréttingar að innan, búið að sparlsa alla veggi að innan. Einnig fylgja innfeldar hvítar innihurðir, harðparket og flísar. Lóð er grófjöfnuð.
Hitalagnir eru í gólfum, vinnulýsing komin en á eftir að draga í dósir.
Virkilega gott skipulag þar sem fermetrarnir nýtast vel.
Eignin afhendist á byggingarstigi B3 auk innihurða og gólfefna.
Frábært tækifæri fyrir þá sem vilja gera húsið eftir sínum smekk.
Hér er linkur á myndband: https://vimeo.com/1012899206 ath. myndbandið er af endaíbúð.Nánari upplýsingar veitir Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 690-2602, tölvupóstur
elin@gimli.is
Eign sem vert er að skoða.Niðurlag:
Róleg og fjölskylduvæn staðsetning þ.s grunnskóli, leikskóli, sundlaug og íþróttasvæði er í góðu göngufæri. Í Þorlákshöfn er öll þjónusta fyrir fjölskyldur með börn til mikillar fyrirmyndar og er mjög gott íþrótta- og tómstundastarf í bænum. Grunn- og leikskólastarf er mjög gott. Í næsta nágrenni er 18 holu golfvöllur og í bænum er öflugt hestamannafélag. Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta.
Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími:
570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isHeimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.