Fasteignaleitin
Skráð 11. apríl 2025
Deila eign
Deila

Áshamar 42 (506)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
111 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
764.865 kr./m2
Fasteignamat
71.800.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2023
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2527845
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
6
Vatnslagnir
Upprunalegt (2024)
Raflagnir
Upprunalegt (2024)
Frárennslislagnir
Upprunalegt (2024)
Gluggar / Gler
Upprunalegt (2024)
Þak
Upprunalegt (2024)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
1,32
Upphitun
Hitaveita og loftskiptikerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
8 - Í notkun
** SVANSVOTTAÐ FJÖLBÝLI ** AUKIN LOFTHÆÐ ** ÚTSÝNI ** GÆLUDÝR LEYFÐ ** HEIMILISTÆKI OG LJÓS FYLGJA **
Fasteignasalan TORG kynnir í sölu glæsilega 4ra herbergja íbúð á fimmtu og efstu hæð í nýju Svansvottuðu lyftuhúsi á frábærum stað í Hamraneshverfinu í Hafnarfirði. Vönduð og vel skipulögð eign, aukin lofthæð, fallegt útsýni og svalir til suðvesturs. Laus strax og afhendist fullbúin með gólfefnum, öllum tækjum og ljósum sem eru til staðar. Íbúðin skiptist í forstofu, gang, eldhús ásamt stofu og borðstofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og sér þvottaherbergi innan íbúðar ásamt sérgeymslu og hjólageymslu í sameign. Möguleiki að leigja bílastæði í bílageymslu og leyfi fyrir dýrahaldi. Draumaeign þeirra sem vilja leika og lifa í nánd við náttúruna. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós lgf. í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is

*** SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA SÖLUYFIRLIT ***

Frábær staðsetning í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í mikilli nálægð við óspillta náttúru og falleg útivistarsvæði. Stutt er í helstu þjónustu og verslanir. Leik- og grunnskólar eru í göngufæri auk þess sem íþróttamiðstöð Hauka og Ásvallalaug er í næsta nágrenni. Svæðið er umlukið fallegri náttúru með fjölbreyttum göngu- og hjólaleiðum, en stutt er í vinsæl útivistarsvæði eins og Hvaleyrarvatn, Ásfjall og Heiðmörk til að njóta útiverunnar.

Um er að ræða Íbúð 506 að Áshamar 42. Birt stærð skv. fasteignaskrá HMS er 111,0 m2, þarf af er 9,6 m2 geymsla í kjallara..

Hægt er að nálgast skilalýsingu og fá nánari upplýsingar hjá Margréti Rós lgf. í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is

Skipulag og lýsing eignarhluta:
Forstofa er opin með harðparket á gólfi og góðum forstofuskápum.
Gangur liggur frá forstofu og tengir saman aðrar vistverur íbúðar.
Alrými þar sem eldhús, stofa og borðstofa eru samliggjandi í opnu og björtu rými, með stórum gluggum á tvo vegu.
Eldhús með fallegri innréttingu frá Parka, vönduðum tækjum frá AEG, innfeldum tvöföldum ísskáp og uppþvottavél. Gott vinnupláss á eyju með helluborð til eldunar og háf, fallegt harðparket á gólfi.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt með harðparket á gólfi og útgengt á suðvestur svalir úr stofu.
Hjónaherbergi er rúmgott með glugga á tvo vegu og góðum fataskáp, fallegt harðparket á gólfi.
Svefnherbergi (I) er rúmgott og bjart með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi (II) bjart með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með fallegri innréttingu við vask og speglaskáp á vegg, upphengdu salerni og inngengri sturtu.
Þvottahús er flísalagt með vinnuborði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara sem fylgja eigninni.
Sérgeymsla íbúðar er inn af sameignargangi í kjallara hússins.

Húsið og lóðin
Áshamar 42 er fimm hæða steinsteypt og álklætt fjölbýlishús auk kjallara. Í stigaganginum eru 28 íbúðir, og í kjallara þess eru sérgeymslur íbúða ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Húsið er hluti af klasabyggingu við Áshamar 42-48, þar sem skemmtilegur garður tengir húsin saman.
Aðkoman að húsinu er góð. Stéttar næst húsi eru hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstígum framan við húsin samkvæmt teikningu. Sameiginleg bílastæði eru á bílaplani sem tilheyra húsinu og möguleiki er á leigu á stæði í bílageymslu.

Svansvottun - Byggingarnar að Áshamri 42-48 eru Svansvottaðar og uppfylla ströngustu umhverfiskröfur Norðurlandanna. Hönnun miðar að lágmarks orkunotkun, betri loftræstingu og hámarksnýtingu dagsbirtu. Allt byggingarefni og verkferlar lúta ströngu eftirliti. Nánari upplýsingar um Svanvottunarferli hér. Verkland er byggingaraðili hússins og er reynslumikið og traust byggingarfyrirtæki sem hefur unnið við húsbyggingar í áratugi. 

Staðsetning og nærumhverfi
Hamraneshverfi er vel staðsett og fjölskylduvænt hverfi í mikilli uppbyggingu með skóla, leiksskóla og falleg útivistarsvæði í næsta nágrenni. Tveir barnaskólar og þrír leikskólar eru til staðar í hverfinu ásamt góðri aðstöðu til íþrótta- og tómstundaiðkunar. Í framtíðinni er gert ráð fyrir enn frekari uppbyggingu með grunnskóla, fleiri leikskólum og heilsugæslu í hverfinu. Hamraneshverfi er kjörinn staður fyrir þá sem vilja njóta samspils náttúru og borgarlífs í fallegu umhverfi þar sem stutt er í góða þjónustu og aðstöðu fyrir alla fjölskylduna.

Einstakt tækifæri til að eignast vandaða íbúð á frábærum stað í Hafnarfirði!

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Hafdís Rafnsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 820-2222 / hafdis@fstorg.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. fasteignasalan TORG bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á. 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/11/202433.200.000 kr.76.000.000 kr.111 m2684.684 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Baughamar 1 - íbúð 104
Bílastæði
Baughamar 1 - íbúð 104
221 Hafnarfjörður
114.6 m2
Fjölbýlishús
413
723 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 35, íb. 506
Bílastæði
Hringhamar 35, íb. 506
221 Hafnarfjörður
110.8 m2
Fjölbýlishús
413
784 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 35, íb. 408
Bílastæði
Hringhamar 35, íb. 408
221 Hafnarfjörður
119.4 m2
Fjölbýlishús
413
728 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37, íb. 404
Bílastæði
Hringhamar 37, íb. 404
221 Hafnarfjörður
111.2 m2
Fjölbýlishús
413
760 þ.kr./m2
84.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin