Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Háseylu.Fallegt og bjart fimm herbergja vel skipulagt einbýlishús á einni hæð á góðum stað í Njarðvík.
Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi. Úr forstofunni er innangengt í þvottahús, gestasalerni og eitt svefnherbergi.
Úr forstofunni er komið inn í stóra stofu sem tengir saman alla hluta hússins.
Gestasnyrtingin sem er nýlega endurnýjuð er með flísum á gólfi og upphengdu salerni.
Svefnherbergin í húsinu eru fjögur, þau eru öll rúmgóð. Skápar eru í öllum herbergjum. Upphaflega voru herbergin þrjú en einu hefur verið bætt við á kostnað borðstofu. Auðvelt er að breyta til fyrri vegar.
Eldhúsið er rúmgott með snyrtilegri innréttingu með miklu skápaplássi.Góður borðkrókur er í eldhúsinu.
Stofa og borðstofa eru í björtu og fallegu rými. Aukin lofthæð er í stofunni. Gluggar eru stórir. Úr stofunni er innagengt inn í 30 fermetra sólstofu sem er ekki inn í fermetratölu hússins. Úr sólstofunni er útgengt út á góðann pall með heitum potti.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með snyrtilegri innréttingu. Þar er baðkar með sturtuaðstöðu og upphengt salerni.
Þvottahúsið er rúmgott með góðri innréttingu.
Gólfefni hússins eru flísar og parket.
Bílskúrinn er skráður 44,4 fermetrar. Góð lofthæð 2,60 og er innkeyrsluhurðin 2,50m. Heitt og kalt vatn og rafmagn. Útgengt er úr bakhluta skúrsins á baklóð hússins. Geymsluloft er yfir hluta hússins. Geymsluloft er einnig yfir hluta bílskúrsins.
Tvær nýjar þriggja fasa rafmagnstöflur eru í húsinu. Önnur í forstofu og hin í bílskúr.
Rafhleðslustöð er við húsið.
9 fermetra óskráður geymsluskúr með stórum hurðum er á milli bílskúrs og húss.
Þetta er virkilega fallegt hús í rólegum botnlanga þar sem stutt er í skóla og leikskóla.Vantar allar gerðir eigna á skrá. Fagleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar veitir:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
josep@fastgraf.is
www.fastgraf.is