Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna glæsilega og bjarta 129 fm 4ra herbergja lúxus endaíbúð á efstu hæð í litlu, nýlegu (2020) lyftuhúsi með útsýni til 3ja átta.
Rúmgott stæði í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni. Skjólgóðar stórar suður-svalir. Húsið er arkitekta hannað og mjög vandað. Húsið er klætt að utan með vandaðri klæðningu og því viðhaldslétt.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð samkvæmt HMS 129,0 fm og þar af er geymsla 7 fm.
Fyrirhugað fasteiganmat 2025 er 100.350.000 kr.
Nánari lýsing:Forstofugangur með góðum skápum og parket á gólfi.
Stofa, borðstofa og
eldhús í mjög rúmgóðu og björtu alrými með parket á gólfi. Útgengt á góðar suður
svalir.Eldhús er einstaklega glæsilegt með granít borðplötum á innréttingu og eyju með flísar milli skápa. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Vínkælir í eyju og hægt að sitja við hana á barstólum. Bakaraofn í vinnuhæð og Combi ofn (venjulegur/örbylgja) þar fyrir ofan.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með frábæru skápaplássi og parket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með góðum skáp og parket á gólfi. Sjónvarpsherbergi í dag.
Svefnherbergi III er rúmgott með góðum skáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er glæsilegt með góðri innréttingu, baðkari, sturtu og glugga. Flísar í hólf og gólf.
Þvottahús er inn á baðherbergi með innréttingu, skápum og skolvaski, en auðvelt væri að stúka á milli með rennihurð.
Fallegt harðparket á gólfum og gólfhiti á allri íbúðinni. Innfelld lýsing á köflum. Aukin lofthæð er í íbúðinni. Rúmgóð sérgeymsla í sameign. Fallegur garður í sameign, hellulagðir stígar og bílastæði. Sameign mjög snyrtileg.
Húsið er á góðum stað í Urriðaholtshverfinu Garðabæ, í göngufæri við skóla og ýmiskonar útivist og stutt í golfvelli og stofnbrautir.
Húsið er glæsilegt og vandað, bæði að innan og utan. Aðkoma að húsinu er bæði að ofanverðu og neðanverðu.
Falleg lúxus eign sem vert er að skoða. Sjón er sögu ríkari.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is