**BÓKIÐ EINKASKOÐUN** SÝND EFTIR SAMKOMULAGI** Glæsileg 4ra herbergja íbúð með stórum sólríkum svölum og stæði í bílageymslu í lyftublokk í Salahverfi í Kópavogi. Elín Alfreðsdóttir lgf sími 8993090 eða elina@valholl.is Virkilega falleg og vel skipulögð 4ra herb. horníbúð á 3. hæð, skráð hjá HMS 120,8 fm íbúð í lyftuhúsi og þar af er geymsla í kjallara skráð 7,4 fm
Íbúðin er rúmgóð, vel skipulögð og björt. Hún skiptist í rúmgóða forstofu með fataskáp, hjónaherbergi með stórum fataskáp, 2 rúmgóð barnaherbergi með fataskáp, glæsilegt nýlega uppgert flísalagt baðherbergi með baðkari/sturtuaðstöðu, þvottahús innan íbúðar, eldhús opið á tvo vegu með rúmgóðri innréttingu og góðu vinnuplássi og stórt og bjart alrými með stofu og borðstofu, þar er útgengi út á um 12 fm svalir sem snúa til suð-vesturs.
Á gólfum í alrými og herbergjum er fallegt nýlegt harðparket en forstofa, baðherbergi og þvottahús eru flísalögð.
Merkt bílastæði B04 er mjög rúmgott og með tengi fyrir hleðslustöð í bílageymslu. Sameiginlegt þvottastæði þar sem hægt er að þvo bíla er staðsett fyrir utan bílageymsluna.
Í kjallara fylgir rúmgóð sérgeymsla með hillum og sameiginleg dekkja og hjólageymsla. Í húsinu starfar virkt húsfélag. - lyftan var endurnýjuð 2023
íbúðin var uppgerð í lok 2022 (fyrir utan eldhús og fataskápa). Veggir lagaðir, nýtt harðparket og gólflistar, baðherbergi uppgert, nýjar flísar í þvottahúsi og í forstofu, allt endurmálað. Gluggar málaðir.
íbúðin er staðsett garðmegin í húsinu, ekki er því ónæði frá umferð. Leikvöllur fyrir börn er í garðinum og að auki er fullt af leiksvæðum í nágrenninu
Gott aðgengi er að húsinu og sameiginleg gestastæði við inngang.
Upplýsingar veitir Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-3090 eða á elina@valholl.is