Hraunhamar kynnir sérlega fallega 4ja herbergja endaíbúð á fimmtu hæð vel staðsett í Vallarhverfinu í Hafnarfirði. Íbúðin er 127,5 fermetrar, þar af er geymslan 13,5 fermetrar.
Yfirbyggðar 21,9 fermetra svalir sem snúna í suður og þaðan er glæsilegt útsýni.
Auk þess fylgir íbúðinni sérstæði í bílakjallaranum, geymslan vel staðsett fyrir innan bílastæðið. Tengi fyrir rafhleðslustöð er komin við bílastæðið.
Skipting eignarinnar: Sérinngangur á svölum, forstofa, hol, þrjú svefnherbergi, stofa, borðstofa, eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymsla auk þess er stæði í lokaðri bílageymslu.
Nánari lýsing eignarinnar:
Forstofa með fataskápum.
Tvö fín
svefnherbergi með fataskápum.
Rúmgott
hjónaherbergi með fataskápum.
Gott
hol. Sérlega rúmgóð
stofa og
borðstofa og þaðan utangengt út á 21,9 fermetra yfirbyggðar
svalir, sem búið er að klæða með timburflísum.
Eldhús með smekklegri innréttingu.
Flísalagt
baðherbergi með innréttingu, þar er hornbaðkar með sturtuaðstöðu.
Innaf baðherberginu er
þvottahús með innréttingu.
Gólfefni eru harðparket og flísar. Þetta er einstaklega falleg íbúð, rúmgóð og frábærar yfirbyggðar svalir sem stækka íbúðina og er íbúðin einskaklega björt og vel við haldið. Stutt í alla þjónustu.
þetta er eign sem vert er að skoða. Nánari upplýsingar veitir Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is Skoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.