Eignaland fasteignasala kynnir í einkasölu EDENMÖRK 1 ÍBÚÐ 101, 810 Hveragerði.
Þriggja herbergja íbúð á neðri hæð í litlu fjölbýlishúsi í Edenbyggð í Hveragerði.
Íbúðin er 75.3 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
ÍBÚÐIN ER LAUS 1.JÚLÍ 2026.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Fannar lögg.fasteignasali í síma 897-5930 eða siggifannar@eignaland.is
eða Jens Magnús Jakobsson í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is Nánari lýsing: Anddyri með einföldum fataskáp.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er út á hellulagða verönd til suðurs úr alrými.
Eldhús, sérsmíðuð innrétting, AEG ofn, spanhelluborði og vifta sem fellur undir efri-skáp.
Stálvaskur og Grohe blöndunartæki.
Svefnherbergin eru tvö, fjórfaldur fataskápur er í hjónaherbergi, einfaldur fataskápur er í minna herbergi.
Baðherbergi með vaskinnréttingu, speglaskápur, upphengt salerni og sturta, sturtuhorn er flísalagt, gluggi, gólfhiti er á baðherbergi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Geymsla er inn af alrými.
Gólfefni: Harðparket á gólfum nema á votrýmum, baðherbergi og anddyri eru flísar.
Sérinngangur er í íbúðina. Sameiginleg lóð er frágengin, sorptunnuskýli, opið hjólaskýli er á lóð.
Miðlægt torg er á milli húsanna á svæðinu þar sem eru fjögur lítil gróðurhús sem íbúar svæðisins geta leigt af sveitarfélaginu til eigin nota.
Edenmörk 1 er fjögurra íbúða staðsteypt tveggja hæða hús. Allir útveggir ásamt veggjum á milli íbúða eru staðsteyptir.
Húsið er klætt að utan með málm- og timburklæðningu.
Bílastæði eru í sameign. Húsfélag er starfrækt í eigninni.
Lóð er sameiginleg 486,4 m² leigulóð.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Fannar lögg.fasteignasali í síma 897-5930 eða siggifannar@eignaland.is
eða Jens Magnús Jakobsson í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is