Domusnova og Hallgrímur Tómasson lögfr. og lgf. kynna:
Vandað og vel byggt 420 fm einbýlishús á tveimur hæðum og þar af 54,6 fm bílskúr við Bleikjukvísl í Reykjavík. Húsið er stórt og rúmgott með miklum útleigumöguleikum! Þar af er um 90 fm aukaíbúð á neðri hæð sem og önnur 30-40 fm studio íbúð, báðar með sérinngangi og sér bílastæði fyrir neðan hús. Á efri hæð eru engar tröppur, gott aðgengi fyrir hreyfihamlaða og yfirstærðir á öllum hurðum hússins. Lýsing eignar:
Efri hæð:Forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskáp, innaf forstofu er fallegt
gestasalerni með flísum á gólfi og veggjum.
Borðstofa og stofa er eitt stórt og bjart rými með útgengi á svalir með miklu og fallegu útsýni.
Eldhúsið er að hluta til opið inn í stofu og er með sésrmíðaðri innréttingu, flísum á gólfi og borðplötum úr steini. Inn af eldhúsi er búr/þvottahús.
Svefnherbergin eru þrjú og öll rúmgóð með parketi á gólfi.
Baðherbergið er mjög smekklegt, rúmgott og með stórri "walk in sturtu".
Innangengt er frá herbergisgangi inn í
sólstofu/garðskála og þaðan inn í
bílskúrinn sem er tvöfaldur og því rúmgóður.
Þegar gengið er niður stigann á neðri hæð hússins er búið að koma fyrir þvottaaðstöðu neðst í stigahúsinu. Þar er hurð sem liggur inn í studioíbúðina.
Neðri hæð:Studioíbúðin var útbúin 2016 og er með forstofu, elhúskrók, parketi á gólfi og rúmgóðu og fallegu baðherbergi með sturtu.
Tveggja herbergja íbúðin er afar rúmgóð með einu svefnherbergi en lítið mál er að bæta við öðru svefnherbergi.
Íbúðin var tekin alveg í gegn 2016 og m.a. baðherbergi og eldhús endurnýjað. A.T.H. að engar myndir eru af íbúðinni eins og er.
Lóðin er snyrtileg og góð að stærð. Mjög góður pallur fyrir neðan hús og góður grasblettur og hellulagt svæði að ofan.
Framkvæmdir sem gerðar hafa verið:Árið 2023 var skipt um gólfefni á efri hæðinni.
Árið 2021 þakið málað
Árið 2021 húsið málað að utan
Árið 2016: Neðri hæð tekin alveg í gegn. Pallur smíðaður. Bæði eldhús tekin í gegn, á efri og neðri hæð.
Eldhúsinnrétting á efri hæð sérsmiðuð frá Grindinni í Grindavík – stein á borðplötu
Bæði baðherbergin tekin í gegn, á efri og neðri hæð
Gestasalernið á efri hæð tekið í gegn
Nánari upplýsingar veita:Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Hallgrímur Tómasson löggiltur fasteignasali / s.659 1896 / hallgrimur@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.