EIGNIN ER SELD.
TORG FASTEIGNASALA KYNNIR Í EINKASÖLU: Fallegt fimm herbergja raðhús við Laufengi 170 Grafarholti. Eignin er á tveimur hæðum og samtals skráðir fermetrar skv. FMR eru 119,4 fm. Gengið er inn á 1. hæð sem telur forstofu, eldhús, gestasnyrtingu, þvottahús, stofu og borðstofu. Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi og eitt þeirra með útgengt á svalir til suðurs, baðherbergi og lítil geymsla/fataherbergi. Góð hellulögð verönd fyrir framan hús og fallegur afgirtur pallur út frá stofu. Tvö sérmerkt bílastæði og sameiginleg hjóla-og vagnageymsla með Laufengi 168.
Nánari upplýsingar veitir Sunna Sigurjónsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 845-0517, tölvupóstur sunna@fstorg.is.Nánari lýsing - neðri hæð:Forstofa: Viðarparket frá Agli Árnasyni er á allri hæðinni nema á gestasnyrtingu og þvottahúsi. Fataskápur er í holi milli gestasalernis og þvottahús.
Eldhús: Ljós innrétting með eyju/borðkróki. Bakaraofn í vinnuhæð, gaseldavél, vifta og tengi fyrir uppþvottavél.
Gestasalerni: Var endurnýjað fyrir sex árum. Fallegar hvítar flísar á hluta af einum vegg ásamt stórum spegli með lýsingu. Upphengt klósett og gráar flísar á gólfi.
Þvottahús: Er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, hvít innrétting og vaskur. Dúkur á gólfi.
Stofa/borðstofa: Björt og falleg stofa með stórum gluggum og útgengt á góðan afgirtan pall til suðurs. Gengið er upp á efri hæð um hvítan teppalagðan stiga. Ljóst kókosteppi er á stiga.
Nánari lýsing -efri hæð:Svefnbergi 1: Er með viðarparketi á gólfi og fataskápum. Útgengt út á svalir til suður með fallegu útsýni.
Svefnherbergi 2-4: Eru einnig með viðarparketi á gólfi og fataskápum.
Hol: Viðarparket á gólfi.
Baðherbergi: Er flísalagt hólf í gólf, baðkar/sturta og gott skápapláss.
Geymsla: Lítil geymsla serm er í dag nýtt sem fataherbergi.
Að sögn seljanda hafa eftirfarandi endurbætur verið gerðar á neðri hæð eignarinnar:
Árið 2018 var nýtt parket frá Agli Árnasyni lagt á neðri hæðina, nýjar hvítar hurðir frá Parka á gestasalernið og þvottahús, allt gestasalerni endurnýjað, þ.e. innyggð blöndunartæki, sérsmíðaður spegill og nýjar flíasar á vegg bakvið salerni og vask.
Sumarið 2023 var öll raðhúsalengjan máluð, múr og tréverk. Borið var á pallinn og skipt út trébotni á svölum.
Góð fjölskyldueign á frábærum stað í Grafarvogi. Stutt er í skóla-og leikskóla og aðra þjónustu. Einnig er stutt í íþróttir en Egilshöll er í göngufæri ásamt góðum útivistarsvæðum. Torg fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,4- 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- . Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.