Snyrtileg og vel staðsett 2ja herbergja íbúð
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna 62,1 m² snyrtilega 2ja herbergja íbúð á 4. hæð við Arahóla 2 í Efra-Breiðholti.
- Frábær fyrstu kaup
- Snyrtilegt og vel viðhaldið hús með lyftu
- Yfirbyggðar svalir
Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is
Íbúðin er skráð 62,1 fm samkvæmt HMS, þar af er íbúðin sjálf 57,5 fm og sérgeymsla 4,6 fm.
Húsfélagsgjöld eru samtals 27.463 kr. á mánuði og skiptast í tvö húsfélög: stigahúsfélag Arahóla 2 (21.822 kr.) og sameiginlegt húsfélag Arahóla 2–4 um ytra byrði hússins (5.641 kr.). Innifalið er hiti, húseigandatrygging, almennur rekstur, rafmagn í sameign, þvottahús, rekstur lyftu og þrif á sameign, auk mánaðarlegs framlags í framkvæmdasjóð.
Nánari lýsing:
Forstofa er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi með parketi á gólfi og skápum.
Aukaherbergi hefur verið útbúið innan íbúðar — gluggalaust en nýtist vel sem skrifstofa, fataherbergi eða geymsla.
Stofa er björt með parketi á gólfi, útgengt á lokaðar svalir með svalaskjóli.
Eldhús með góðri innréttingu og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum, með upphengdu salerni, sturtu og innréttingu með vaski. Tengi fyrir þvottavél.
Sérgeymsla, 4,6 m², fylgir íbúðinni.
Skv. upplýsingum seljenda þá hafa þessar framkvæmdir verið gerðar undanfarin ár:
Þak endurnýjað (2022)
Báðir gaflar teknir í gegn (2019)
Vesturhlið endurnýjuð (2020)
Sjálfvirk lýsing sett upp í geymslugöngum (2024)
Ný þvottavél í sameiginlegu þvottarými (2025)
Nýleg lyfta í húsinu (2019)
Sameign og umhverfi:
Snyrtilegt sameiginlegt þvottahús auk hjóla- og vagngeymslu er í sameign. Sameign og stigagangur eru mjög snyrtileg. Eignin tilheyrir húsfélögum Arahóla 2 og Arahóla 2–4, og er hússjóður og umsýsla í höndum Eignaumsjónar.
Stutt er í verslunarmiðstöðina í Hólagarði, góða skóla og leikskóla, auk þess sem örstutt er í Elliðaárdalinn til útivistar.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.