Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Fallegt, bjart og mikið endurnýjað endaraðhús á frábærum stað í Grafarvoginum. Eignin er sérlega vel skipuögð með 4 svefnherbergja, baðherbergi, gestasalerni, sér þvottaherbergi og geymsla innan íbúðar.. Stór afgirt timburverönd er út frá stofu sem snýr í suður. Húsið var málað að utan bæði útveggir og tréverk árið 2023. EInnig var þak yfirfarið og málað á sama tíma. Tvö sérmerkt bílastæði eru fyrir framan eignina sem fylgja húsinu. Eignin er staðsett stutt frá allri helstu þjónustu sem til dæmis verslunarkjarninn Spönginni hefur upp a að bjóða ásamt íþróttamiðstöðinni Egilshöll svo eitthvað sé nefnt.
Allar helstu upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
* Rúmgóður afgirtur sólpallur til suðurs
* Endurnýjað gler í gluggum að hluta
* 2 sérmerkt bílastæði fyrir framan
* Bílskúrsréttur samkv. deiliskipulagi samþykkt 3.11.06
* Öll rahúsalengjan var máluð sumarið 2023, útveggir, tréverk og þakjárn. Birt stærð samkv. Fasteignaskrá Íslands er 119,40 m2.
Neðri hæðin skiptist í forstofu, hol, eldhús, borðstofu / stofu, gestasalerni og þvottahús.Forstofa: Komið er inn í forstofu inn um sérinngang á jarðhæð. Forstofan er með fallegum gráum flísum á gólfi og góðum fataskáp í holi.
Eldhús: Eldhúsið er fallega endurnýjað með góðri U-laga innréttingu með efri skápum á einn vegg, glugga fyrir miðju og tækja skáp á þriðja vegg. Bakarofn er í vinnuhæð, tengi er fyrir uppþvottavél og ísskápur með frysti er innbyggður í innréttingu. Bjartur borðkrókur er við glugga.
Stofa / borðstofa: Setustofa og borðstofa eru saman í opnu rými.. Stofan er björt með gluggum á tvo vegu. Harparket er á gólfi. Útgengt er út á rúmgóðan afgirtan sólpall til suðurs.
Þvottaherbergi: Sér þvottaherbergi er á hæðinni. Vinnuborð og skolvask, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Gestasalerni: Gestasalernið er flísalagt með upphengdu wc, innrétting með handlaug og skúffum.
Fallegur hvítur teppalagður stigi leiðir á efri hæð.Efri hæðin skiptist í hol, 4 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.Svefnherbergi 1: er með parket á gólfi og fataskápum. Útgengt út á svalir til suðurs.
Svefnherbergi 2: er með parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: er með parket á gólfi
Svefnherbergi 4: er með parket á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt með fallegum ljósum flísum. Baðkari er með sturtuaðstöðu og gleri. Salernið er upphengt. Við enda baðkarsins er hár skápur og innrétting er undir vaskaborði með skúffum.
Geymsla: Geymsla er innan íbúðar á hæðinni.
Meðafram húsi er afgirt hellulögð verönd til vesturs. Fyrir framan hús er sameiginleg vagna og hjólageymsla með húsi nr. 170.Virkilega góð fjölskyldueign á góðum stað í Grafarvogi, stutt er í alla skóla ásamt þjónustu verslun og Egilshöll í göngufæri. Íþróttir og flott útivistarsvæði í göngufæri einnig.Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is