Fasteignaleitin
Skráð 17. jan. 2025
Deila eign
Deila

Skúlagata 40B

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
154.9 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
117.900.000 kr.
Fermetraverð
761.136 kr./m2
Fasteignamat
98.150.000 kr.
Brunabótamat
80.200.000 kr.
Mynd af Gylfi Jens Gylfason
Gylfi Jens Gylfason
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali / Lögmaður
Byggt 1990
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2003547
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
sjá lýsingu
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Austursvalir og sameiginlegar til vesturs
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Sjá húsfélagsyfirlýsingu. 
Gylfi Jens og Guðbjörg Helga löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX kynna Skúlagötu 40B, 101 Reykjavík.
Björt og vel skipulögð 4-5 herbergja penthouse íbúð á 4. og efstu hæð í góðu fjölbýlishúsi með lyftu fyrir 60 ára og eldri við Skúlagötu í Reykjavík. Það er aukin lofthæð og stórir gluggar sem gefa góða birtu og einstakan sjarma. Svalir eru til austurs og sérstæði í upphitaðri bílageymslu. Eignin er skráð 154,9 fm hjá Fasteignaskrá, þar af íbúðarhluti 139,9 fm og sérstæði í bílageymslu er skráð 15,0 fm. Í sameign er aðstaða með heitum potti, sauna og þrektækjum. Tvær geymslur eru í íbúðinni sem liklega eru ekki allar í fm og síðan leigir eigandi geymslu af húsfélaginu og er það gjald rukkað með hússjóði. Aðeins tvær íbúðir eru á hæðinni og eu sameiginlegar þaksvalir til vesturs milli íbúðanna (sameign allra). Húsið er með 10 íbúðum en húsfélagið samanstendur af húsum 40, 40A og þessu húsi 40B og á sameiginlegri lóð sem er eignarlóð eigendanna, snjóbræðsla er á lóðinni og einnig á Hverfisgötu, en ekki á stuttum hluta Barónstígs þar á milli. 

                   **SÆKTU SÖLUYFIRLIT HÉR MILLILIÐALAUST** 

                   ** 3-D: SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD OG MÁTAÐU ÞIG OG HÚSGÖGNIN ÞÍN MEÐ MÆLISTIKUNNI  - SMELLTU HÉR**

        NÚVERANDI SKIPULAG: 
Forstofa, stofa, eldhús, baðherbergi, 2 svefnherbergi, sjónvarpsstofa, þvottahús og 2 geymslur innan íbúðar. Sérstæði í lokaðri upphitaðri bílageymslu.

        NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Gólfefni íbúðar er parket fyrir utan baðherbergi og þvottahús þar sem eru flísar.
Forstofa: Rúmgóð með fataskápum.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðum skáp.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með fataherbergi.
Geymsla 1: Er innaf fataherbergi í hjónaherbergi (sjá teikningu). 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Hvít innrétting með granítborðplötu, upphengt salerni, baðkar og flísalögð sturta. Handklæðaofn.
Sjónvarpsstofa: Mjög rúmgóð með glerþaki yfir að hluta. Útgengt á hellulagðar svalir til austurs.
Geymsla 2: Er innaf sjónvarpsstofu (sjá teikningu).
Stofa: Afar stór og björt  með mikilli lofthæð.
Eldhús: Er með svartlakkaðri innréttingu með graníti á borðum. Bakaraofn, helluborð og vifta. Stæði fyrir uppþvottavél. Góð borðaðstaða er í eldhúsi við útbyggðan glugga.
Þvottahús: Er innaf eldhúsi. Stæði fyrir þvottavél og þurkara. Hillur og innrétting með vaski.
Sérbílastæði í lokaðri upphitaðri bílageymslu fylgir íbúðinni. Stæðið er nr. B24.
Núverandi eigandi er með leigusamning við húsfélag um geymslu nr. 13  sameiginlegu rými í kjallara. Leigugjald er kr. 2.500,- á mánuði.

       SAMEIGN HÚSA NR. 40, 40A OG 40B 
Þvottaaðstaða fyrir bílastæðaeigendur í bílastæðahúsi hússins.
Sameiginleg hjólageymsla.
Sameiginleg bílastæði í porti milli húsanna með innkeyrslu frá Barónsstíg og einnig eru stæði neðan húss nr. 40 þar sem ekið er inn í bílastæðahús sem er á jarðhæð.
Sameiginlegt þurrkherbergi, stórt og með lökkuðu gólfi (hjá húsi 40B)
SPA -aðstaða: Líkamsræktaraðstaða með heitum potti og  sauna (nr 40)
Samkomusalur (nr 40)
Húsvarðaríbúð sem er í útleigu (nr 40)
Innangegnt er á milli húsanna þriggja gegnum bílastæðahús. Lyklakóða eða rafmagnsdropa þarf til að opna dyr.

      FRAMKVÆMDASAGA
Nýlega var húsið múrviðgert og málað að utan og þak, þakrennur og niðurföll endurnýjuð (húsfélag)
Búið er að endurnýja alla hitaveituofna í íbúðinni (séreign)
Lóðin er falleg með tyrfðum flötum og hellulögðum stéttum með hitalögnum undir og næg bílastæði eru á lóð hússins Barónsstígs megin og einnig neðan húss.
Búið er að endurnýja gler að hluta í íbúðinni og sett sólarvarnargler.

Félagsheimili Reykjavíkurborgar er í fimm mínútna göngufjartlæð að Lindargötu 59, en þar er hægt að fá heitan mat í hádeginu og ýmsa aðra þjónustu sjá nánar hér: https://reykjavik.is/lindargata-59
Kvöð er að kaupandi hafi náð 60 ára aldri og gerist félagsmaður hjá Félagi eldri borgara (FEB) og greiði árgjald þar, sem er lágt og i boði eru ýmis sérkjör fyrir félagsmenn.

Samantekið er þetta afar björt og skemmtileg 4-5 herbergja glæsileg penthouse íbúð með aukinni lofthæð á vinsælum stað í miðborginni með einkabílastæði í lokaðri bílageymslu.

      ALLAR UPPLÝSINGAR VEITA:
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður  í netfanginu gylfi@remax.is og síma 822 5124 
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í netfanginu gudbjorg@remax.is og síma 897 7712
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/11/202166.100.000 kr.79.500.000 kr.154.9 m2513.234 kr.
17/03/201437.250.000 kr.40.725.000 kr.154.9 m2262.911 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1990
15 m2
Fasteignanúmer
2003547
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
24
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.800.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sólvallagata 79
Skoða eignina Sólvallagata 79
Sólvallagata 79
101 Reykjavík
108.3 m2
Fjölbýlishús
312
1135 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Skoða eignina Sólvallagata 79
3D Sýn
Skoða eignina Sólvallagata 79
Sólvallagata 79
101 Reykjavík
108 m2
Fjölbýlishús
312
1138 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Skoða eignina Sólvallagata 79
Skoða eignina Sólvallagata 79
Sólvallagata 79
101 Reykjavík
96.6 m2
Fjölbýlishús
312
1127 þ.kr./m2
108.900.000 kr.
Skoða eignina Sólvallagata 79
Skoða eignina Sólvallagata 79
Sólvallagata 79
101 Reykjavík
96.6 m2
Fjölbýlishús
312
1127 þ.kr./m2
108.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin