ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:Selvogsgata 8, 220 Hafnarfjörður er rúmgóð og björt hæð ásamt risi í tvíbýlishúsi á besta stað í hjarta Hafnarfjarðar. Um er að ræða 84,4 fermetra eign sem skiptist í íbúðarrými á neðri hæð 46,2 fm, íbúðarrými á efri hæð (ris) 34 fm og úti geymsla 4,2 fm. Eignin var endurnýjuð árið 2018-2019 og var meðal annars sett nýtt parket á neðri hæð og baðherbergi endurnýjað. Sér stæði fylgir íbúðinni.
Bókið einkaskoðun!
Ásgeir Þór Ásgeirsson Viðskiptalögfræðingur - Löggiltur fasteignasali, í síma 7720102, tölvupóstur asgeir@allt.is
Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8674885, tölvupóstur elin@allt.isNánari lýsing eignar:Forstofa: Með flísum á gólfi og fatahengi
Eldhús: Snyrtilegt eldhús með borðkrók og uppgerðri innréttingu með tengi fyrir uppþvottavél og þvottavél. Parket á gólfum.
Stofa og borðstofa: Rúmgóð stofa sem er opin með eldhúsi. Parket á gólfum
Barnaherbergi: með parket á gólfi
Hjónaherbergi: Rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Úti geymsla: Köld 4,2 fm úti geymsla
Lóðin: Vel hirt lóð í sameign með fallegum garði
Í heildina mjög björt og skemmtileg eign sem staðsett er á afar góðum stað í hjarta Hafnarfjarðar. Stutt í leik- og grunnskóla, Flensborg og alla helstu þjónustu og verslanir
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.