CROISETTE - KNIGHT FRANK kynna í einkasölu þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og bílskúr í vel staðsettu þríbýli miðsvæðis í Hafnarfirði. Íbúðin er skráð 90,9 fm en þar af er bílskúrinn 21,4 fm. Sameiginlegt þvottahús sem er innangengt úr íbúð. Friðsælt umhverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, sundlaug og alla helstu þjónustu. Allar nánari upplýsingar veita Þorbirna Mýrdal, löggiltur fasteignasali í s. 888-1644 eða thorbirna@croisette.is og Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.isSMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLITÞrívíddarteikning af eigninni:SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3-DNánari lýsing:Forstofa: Innbyggður fataskápur. Flísar á gólfi.
Eldhús: Hvít innrétting með viðarborðplötu frá IKEA. Stór hvítur vaskur, blöndunartæki með útdraganlegum stút. Helluborð, ofn og vifta. Flísalagt á milli skápa. Parket á gólfi.
Stofa: Rúmgóð stofa með parketi á gólfi og gluggum til suðvesturs og norðvesturs.
Stærra herbergi: Rúmgott herbergi með glugga til norðvesturs. Parket á gólfi. Fataskápur getur fylgt með.
Minna herbergi: Gott herbergi með harðparketi á gólfi. Hefur verið notað sem fataherbergi.
Baðherbergi: Með sturtuklefa, vask og salerni.
Þvottahús/geymsla: Úr íbúðinni er gengið inn í rúmgott sameiginlegt þvottahús með sér tenglum fyrir hverja íbúð. Hitainntak hússins og mælar eru staðsettir í þvottaherbergi. Úr þvottahúsi er gengið út í bakgarð.
Bílskúr: Er 21,4 fermetrar að stærð, sérstæður við húsið, upphitaður, með heitu og köldu vatni.
Hellulögð innkeyrsla/stæði fyrir framan bílskúr með hita.
Garður: Lóðin er 781,0 fermetrar að stærð, vel hirt, með tyrfðum flötum og fallegum gróðri.
Köld geymsla: Sameiginleg köld geymsla er staðsett undir útitröppum.
Nánari upplýsingar veita: Þorbirna Mýrdal, löggiltur fasteignasali í s. 888-1644 eða
thorbirna@croisette.isKarl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða
kalli@croisette.is Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.