Fasteignaleitin
Opið hús:27. ágúst kl 18:00-18:30
Skráð 24. ágúst 2026

Dverghamrar 7

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
214.4 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
169.900.000 kr.
Fermetraverð
792.444 kr./m2
Fasteignamat
147.350.000 kr.
Brunabótamat
110.650.000 kr.
Mynd af Aðalsteinn Bjarnason
Aðalsteinn Bjarnason
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1988
Garður
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Hleðslustöð
Á einni hæð
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2039160
Landnúmer
109197
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt - Inntak og lagnagrind yfirfarin 2025
Raflagnir
Endurnýjað að hluta (2022)
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta (2012)
Þak
Endurnýjað að hluta (2020)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tveir sólpallar
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita - Danfoss
Inngangur
Tveir inngangar
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Samkvæmt seljanda er rakasperra (plastfilma) í uppteknu lofti í stofu rofin á tveimur stöðum, líklega við festingar (hefti) í lektum. Ummerki koma aðeins fram í miklu frosti. Lagfæring krefst opnunar á panelklæðningu að hluta til að líma (teypa) yfir rakasperru á þessum stöðum.
Fasteignasalan TORG og Aðalsteinn Bjarnason lgf. kynna í einkasölu einstaklega rúmgott og vel skipulagt 214,4 m² einbýlishús á einni hæð með fjórum svefnherbergjum og innbyggðum bílskúr við Dverghamra 7 í Reykjavík. Samkvæmt núverandi skipulagi er íbúðarhlutinn 171,2 m² og bílskúr 43,2 m² að stærð. Eignin skiptist í anddyri, hol og gang, fjögur rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni, rúmgott eldhús með borðaðstöðu, innréttað matarbúr, sjónvarpshol, stofu og borðstofu, vinnuaðstöðu, stóran innangengan bílskúr með veglega þvottaaðstöðu. Húsið einkennist af björtum og rúmgóðum alrýmum með mikilli lofthæð og fallegum timburklæddum loftum. Við húsið er stór timburverönd með heitum potti aftan við hús og önnur minni timburverönd sem gengið er útá, bæði frá hjónaherbergi og stofu. Á lóðinni standa svo 14,4 m² geymsluskúr og glæsilegt 16,2 m² garðhús, með rafmagnshitun. Samþykktar teikningar vegna mögulegrar stækkunar skapa auk þess spennandi tækifæri til framtíðar fyrir nýja eigendur.  - Allar nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Bjarna lgf. í síma 773-3532 eða email adalsteinn@fstorg.is

Helstu framkvæmdir og endurbætur undanfarin ár að sögn seljanda:
2012 - Skipt að hluta um gler á suðausturhlið.
2020 - Þakklæðning og þakpappi endurnýjuð.
2021 - Garðhús og geymsluskúr reist.
2022 - Rafmagnstafla yfirfarin og endurbætt.
2025 - Inntak vatnslagna og lagnagrind yfirfarin.
2025 - Þvottaaðstaða í bílskúr og matarbúr innréttuð.
​​​​​
Um er að ræða sérlega rúmgott og fjölskylduvænt hús þar sem öll rými eru á einni hæð. Fjögur svefnherbergi, stór og björt alrými, góð vinnuaðstaða, rúmgóður bílskúr, mikið geymslupláss og einstaklega skjólgott útisvæði gera eignina að áhugaverðum valkosti í grónu og fjölskylduvænu hverfi.

Nánari skipting og lýsing eignarhluta:
Anddyri/hol: Flísalagt anddyri og rúmgott, miðlægt hol sem tengir saman helstu rými hússins. Gott skápapláss er á gangi.
Eldhús: Bjart og rúmgott eldhús með góðri borðaðstöðu og gluggum á tvo vegu. Innrétting með miklu skápa- og vinnuplássi, innbyggðum ofni og rými fyrir stóran ísskáp. Dökkar flísar eru á gólfi.
Matarbúr/Geymsla: Inn af eldhúsi er nýlega innréttað matarbúr með góðu geymsluplássi fyrir matvæli og eldhústæki. Einnig er rúmgóður fataskápur í rýminu.
Sjónvarpshol: Rúmgott sjónvarpshol í opnum tengslum við eldhúsið. Mikil lofthæð, timburklætt loft og sýnilegir bitar setja sterkan svip á rýmið.
Stofa og borðstofa: Stórar og bjartar samliggjandi stofur með fjölbreyttum möguleikum á uppröðun. Stórir gluggar veita ríkulega birtu og fallega tengingu við garðinn. Útgengt er á timburverönd.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott og bjart hjónaherbergi með gluggum á tveimur hliðum og góðri fataskápainnréttingu. Herbergið var stækkað með sameiningu tveggja rýma samkvæmt upprunalegri teikningu.
Svefnherbergi: Þrjú önnur björt og rúmgóð svefnherbergi sem henta vel sem barna-, gesta- eða vinnuherbergi.
Baðherbergi: Rúmgott, flísalagt baðherbergi með frístandandi baðkari, sér sturtu, upphengdu salerni, handlaug og glugga. Hiti í gólfi.
Gestasalerni: Sér gestasalerni með upphengdu salerni og handlaug.
Vinnuaðstaða/skrifstofa: Rými sem áður var þvottahús hefur verið innréttað sem góð vinnuaðstaða með fallegri rimlaklæðningu. Innangengt er þaðan í bílskúr. Útgengi á timburverönd.
Bílskúr: Innbyggður 49,2 m² bílskúr með rafdrifinni innkeyrsluhurð og tveimur Tesla hleðslustöðvum. Bílskúrinn er vel nothæfur sem slíkur en er nú nýttur sem líkamsræktar-, tómstunda-, geymslu-, og þvottarými. Stór fataskápur fylgir.
Þvottarými: Aftast í bílskúrnum var árið 2025 komið fyrir veglegri þvottaaðstöðu með innréttingu, vaski, vinnuborði og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Auk þess er rými við enda innréttingar fyrir tvöfaldan ísskáp.

Samkvæmt fasteignayfirliti HMS er eignin samtals 214,4 m², þar af er íbúðarhlutinn 165,2 m² og innbyggður bílskúr 49,2 m². Húsið er timburhús, byggt árið 1988. Að auki eru á lóðinni 16,2 m² garðhús og 14,4 m² geymsluskúr, hvort tveggja reist árið 2021 samkvæmt upplýsingum seljenda.

Lóð og útisvæði
Lóðin er 842 m², gróin og skjólgóð, með miklu næði. Rúmgott steypt bílaplan er framan við húsið með góðu stæði fyrir marga bíla. Við húsið er stór timburverönd með góðri aðstöðu fyrir útihúsgögn, grill og heitan pott. Yfir pottinum er Philips Hue LED-lýsing og fylgir potturinn eigninni. Búið að gera leggja lagnir fyrir útisturtu. Á Suð-vestur hlið er önnur timburverönd sem hægt er að ganga út á frá hjónaherbergi og stofu. Í garðinum er glæsilegt 16,2 m² garðhús með gleri á veggjum og þaki. Þar er setuaðstaða og öflugir SunRed-hitarar sem gera kleift að njóta rýmisins stóran hluta ársins. Einnig er á lóðinni 14,4 m² geymsluskúr, sem er frostfrír. Sér rafmagnstafla er fyrir garðhús og geymsluskúr.

Möguleg stækkun
Fyrir liggur umfangsmikið safn samþykktra hönnunar- og verkfræðiteikninga frá árinu 2008 vegna fyrirhugaðrar stækkunar hússins um allt að 36,7 m², ásamt samþykktri breytingu á deiliskipulagi. Gögnin ná meðal annars til aðaluppdrátta, burðarvirkis, grunna, lagna og gólfhita. Mikil hönnunar- og undirbúningsvinna hefur því þegar verið unnin, sem getur sparað nýjum eiganda verulegan tíma og kostnað vilji hann kanna möguleika á stækkun eignarinnar. Kaupendum er bent á að kynna sér gildistíma samþykkta og mögulega endurafgreiðslu teikninga hjá Reykjavíkurborg.

Búnaður sem má fylgja eigninni
Heitur pottur, Philips Hue-lýsing yfir potti, SunRed-hitarar í garðhúsi, stórir skápar í matarbúri og bílskúr, tvær Tesla-rafbílahleðslustöðvar með sér rafmagnstöflu og fjórar Google Nest-öryggismyndavélar.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
07/11/201141.900.000 kr.49.000.000 kr.214.4 m2228.544 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1988
49.2 m2
Fasteignanúmer
2039160
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
17.750.000 kr.

Myndir (65)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hörpulundur 7
3D Sýn
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:30. ágúst kl 15:30-16:30
Skoða eignina Hörpulundur 7
Hörpulundur 7
210 Garðabær
199 m2
Einbýlishús
614
980 þ.kr./m2
195.000.000 kr.
Skoða eignina Hrauntunga 59
3D Sýn
Opið hús:30. ágúst kl 14:00-15:00
Skoða eignina Hrauntunga 59
Hrauntunga 59
200 Kópavogur
214.3 m2
Raðhús
625
758 þ.kr./m2
162.500.000 kr.
Skoða eignina Döllugata 10
Bílskúr
Opið hús:27. ágúst kl 17:15-17:45
Skoða eignina Döllugata 10
Döllugata 10
113 Reykjavík
380.7 m2
Einbýlishús
946
722 þ.kr./m2
275.000.000 kr.
Skoða eignina Smárarimi 25
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:24. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Smárarimi 25
Smárarimi 25
112 Reykjavík
188.2 m2
Einbýlishús
4
866 þ.kr./m2
162.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin