Fasteignaleitin
Opið hús:27. ágúst kl 16:30-17:00
Skráð 21. ágúst 2025
Deila eign
Deila

Drangsskarð 11b

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
111.3 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
852.650 kr./m2
Fasteignamat
72.650.000 kr.
Brunabótamat
66.650.000 kr.
Mynd af Brynjar Ingólfsson
Brynjar Ingólfsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2022
Þvottahús
Gæludýr leyfð
Fasteignanúmer
2365204
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: 4ra herbergja 111 m² sérhæð. Mikið lagt í frágang bæði að innan sem utan. Íbúðin er með stóra glugga í þrjár áttir.

*** SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D HÉR (MEÐ OG ÁN HÚSGAGNA) ***


- Uppsett sem þriggja herbergja en gert er ráð fyrir að hægt sé með auðveldum hætti að bæta við fjórða herberginu.
- Gólfhiti, Quartz borðplötur (Dekton), svalarlokun/sérafnotareitir, Simens raftæki, niðurfelld spanhelluborð, undirlímdir vaskar, innfelldar led lýsingar.
- Sérmerkt bílastæði ásamt fjölda auka bílastæða.
- Sjálfstætt loftræstikerfi í íbúð sér um loftskiptin í öllum rýmum og endurnýtir hitann og skilar heimilinu góðum loftgæðum.

Nánari lýsing:

Sérinngangur. Rúmgott anddyri með góðum fataskáp. Inn af anddyri er þvottahús/geymsla með stórum búrskáp, þvottahússkáp og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Frá anddyri er komið inn í stórt opið rými, stofu, borðstofu og eldhús. Stofan er björt með stórum gluggum. Hellulögð sérverönd og sérafnotaflöt. Möguleiki er að útbúa þriðja herbergið úr hluta stofunnar. Fallegt eldhús með djúpri borðplötu þar sem er gert ráð fyrir tækjageymslu. Stór eldunareyja sem hægt er að sitja við. Tvö rúmgóð svefnherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi er flísalagt að hluta með vönduðum 60*60 flísum.
Í sameign er sorpgeymsla, hjóla- og vagnageymsla ásamt tæknirými

SVANSVOTTUN
Það þýðir að húsin eru byggð eftir gæðakerfi þar sem tekið er á fjölmörgum þáttum sem byggingarreglugerð nær ekki yfir að sama marki. Má þar nefna: lágmarks rekstarkostnaður, valin byggingarefni með hollustu íbúa og umhverfisáhrif í huga.
LOFTRÆSTIKERFI
Í íbúðinni er sjálfstætt Komfovent loftræstikerfi sem að blæs inn í öll rými íbúðar fersku lofti sem að hitað er upp með lofti sem að sogað er út.
Nýtnin á orkunni þar er um 87%. Þetta þýðir lægri rekstrarkostnað en umfram allt betri loftgæði. Kerfið heldur líka loftinu á hreyfingu og í því eru líka síur fyrir loftið sem blásið er inn.
GÓLFHITI
Upphitun er með gólfhita en eini ofninn er handklæðaofn. Gólfhitagrindin er innfeld í veggnum og lokað með þjónustulúgu.
Gólfhiti og loftræstikerfi vinna mjög vel saman og skila góðum loftgæðum.
BAÐHERBERGI
Stór og breið sturta. Sturtuglerið er ekki með slá heldur svörtum ramma og stöng upp í loft. Vandaðar flísar 60*60 flísar bæði á veggjum og gólfi. Spegill með baklýsingu. Innbyggður klósettkassi.
STÓRIR FATASKÁPAR
Stórir skápar bæði í anddyri og báðum svefnherbergjum. Skáparnir sem eru frá ikea eru frekar vel búnir af innvolsi en með einni ferð í IKEA geta kaupendur mótað þá eftir sínum þörfum.
ELDHÚS
Eldhúsborðið vegg megin er með dýpri borðplötu þannig að rými er fyrir kaffivél, brauðrist og slíkt fyrir innan án þess að rýra vinnuplássið á borðinu. Tenglar eru undir yfirskápnum
þannig að auðvelt er að þrífa veggplötuna á bak við sem að er hvít og slétt. Dekton borðplötur frá Cosentino úr quartz steini. Simens raftæki, spanhelluborð er fellt niður í steinborð
þannig að það er slétt við borðplötuna. Undirfelldur eldhúsvaskur. Undir efriskápum er LED undirskápaljós.  Bakhliðin á eldhúseyjunni er klætt með hljóðdempandi þiljum.
INNFELLD LED LÝSING
Yfir eyju og framan við svefnherbergi eru innfelld 2ja metra LED ljós sem gefa nútímalegan tón og birtu.
SVALAINNSKOT OG SÉRAFNOTAFLETIR
Íbúðin er með svalainnskot og sérafnotareiti þar sem möguleiki er að smíða pall.
RAFLAGNIR
Tenglar og rofar eru svart efni úr Q-línunni frá Berker.
GÓLFEFNI
Parketið er Buckingham eik og er 12 mm harðparket frá Byko og er með hörkustuðulinn AC5/33. Undir öllum gólfefnum, parketi jafnt sem flísum er
hljóðdempandi undirlag bæði á efri og neðri hæðum.
YTRA BIRGÐI - KLÆÐNING
Lárétt svart klassískt bárujárn. Sementsplötur frá Viroc. Standandi 22 mm opin timbur klæðning í anddyrum, svölum og svalainnskotum.
TORFÞAK
Bara eins og í gamla daga þá er torfþak á húsinu með úthagatorfi sem aldrei þarf að slá. Friðað svæði fyrir fugla og fallegt útsýni úr sumum íbúðanna.
VIÐHALDSLÉTT LÓÐ
Göngustígar eru hellulagðir og með snjóbræðslu [ASI2] sem og allar tröppur. Þrír hvíldarpallar eru án snjóbræðslu. Lóðin er tyrfð með tvenns konar torfi
sem að hvorugt þarfnast mikillar umhirðu. Við lóðarmörk bæði austan og vestan megin er úthagatorf sem þarf  aldrei að slá en á sérafnotaflötum og
innar í lóðinni er hvítsmáratorf. Lesa má um þessar torftegundir inni á torf.is. Bílastæðin eru með nautsterkum Ecoraster grindum fylltum af möl.
ÚTILÝSING
Útilýsingin sem er við öll anddyri og svalir er 2ja metra innfelld óbein LED lýsing. Tröppur í lóð eru með handriðum með lýsingu undir handlistanum.
Útilýsingin gefur einstaklega fallegt yfirbragð yfir eignirnar þegar dimma tekur.
HLEÐSLA RAFBÍLA
Lagnaleiðir eru að hleðslu rafbíla á 10 stöðum á lóðinni. Í aðaltöflu er gert ráð fyrir að hægt sé að tengja hleðslu rafbíls inn á rafmagnsmælir á hverri íbúð fyrir sig.
Fallegir hleðslustaurar eru uppsettir fyrir þær hleðslustöðvar sem ekki koma á vegg.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/08/202572.650.000 kr.96.500.000 kr.111.3 m2867.026 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Apalskarð 4 - 103
Bílastæði
Opið hús:24. ágúst kl 13:00-13:30
Apalskarð 4 - 103
221 Hafnarfjörður
133.2 m2
Fjölbýlishús
413
683 þ.kr./m2
91.000.000 kr.
Skoða eignina Apalskarð 2 - 308
3D Sýn
Bílastæði
Opið hús:24. ágúst kl 13:00-13:30
Apalskarð 2 - 308
221 Hafnarfjörður
122.3 m2
Fjölbýlishús
413
760 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Apalskarð 2 - 208
3D Sýn
Bílastæði
Opið hús:24. ágúst kl 13:00-13:30
Apalskarð 2 - 208
221 Hafnarfjörður
119.6 m2
Fjölbýlishús
413
768 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Skoða eignina Hádegisskarð 24B
Hádegisskarð 24B
221 Hafnarfjörður
101.1 m2
Hæð
43
909 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin