**** VEGNA SÉRSTAKRA AÐSTÆÐNA BÝÐST ÞETTA FÍNA EINBÝLISHÚS LANGT UNDIR MARKAÐSVIRÐI ****
Bókaðu skoðun hjá Böðvari Reynissyni löggiltum fasteignasala í síma 7668484, tölvupóstur bodvar@eignaland.is
Gott 5 herbergja steinsteypt einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr í Ólafsvík. Húsið er byggt árið 1981. Talsvert hefur verið unnið að endurbótum að húsinu undanfarin misseri, en ýmislegt er þó óklárað og/eða þarfnast endurnýjunar. Búið er að endurnýja þak, leggja hita í gólf á neðri hæð, endurnýja skólp að hluta og skipta um einn glugga í stofunni, sjá nánar "ástand og viðhald skv. eiganda" hér að neðan. Öll helsta þjónusta er í göngufæri, s.s. matvöruverslun, leikskóli, grunnskóli, líkamsrækt, sundlaug og strætó.
Upplýsingar úr FMR: Brautarholt 19, 355 Ólafsvík, 201,4m², eign merkt 01-01, fastanúmer 210-3471 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Skipting eignar:
Efri hæð: 77,9m² - Forstofa, gestasnyrting, hol, stofa, eldhús, búr og bílskúr.
Neðri hæð: 94m² - 4x svefnherbergi, gangur, baðherbergi, þvottahús og geymsla.
Bílskúr: 29,5m²
Lýsing eignar:
Forstofa með flísum á gólfi.
Gestasalerni er við hlið forstofu, flísar á gólfi, vegghengt salerni og rúmgóð innrétting með handlaug og spegli yfir handlaug.
Stofan og borðstofan eru rúmgóðar með flísum á gólfi og hurð út á góðan afgirtan sólpall.
Eldhúsið er rúmgott með lökkuðu steingólfi, borðkróki og eldri innréttingu með góðu skápaplássi.
Búr er inn af eldhúsi, dúkur á gólfi.
Neðri hæð:
4x svefnherbergi með flotuðum gólfum og gólfhita, hjónaherbergið er með góðu skápaplássi.
Gangur með flotuðum gólfum og gólfhita.
baðherbergi með flísum á gólfi, baðkari með sturtu, vegghengdu salerni og innréttingu með handlaug og spegli yfir handlaug.
Þvottahús er inn af gangi við botn stigans, flísar á gólfi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla með flísum á gólfi og rúmgóðum skáp.
Geymsluloft er yfir húsinu.
Góður sólpallur.
Gott útsýni.
Ástand og viðhald skv. eiganda:
Skipt um járn og pappa á þaki sumarið 2019, á eftir að klára rennur og þak kantinn.
Skipt var um stóra gluggann í stofunni sem liggur í suðurátt og farið í sprunguviðgerðir á austurgafli hússins.
Skipt um skólplögn frá klósetti á neðri hæð og út fyrir grunn og hiti settur í gólf á neðri hæð í gangi og öllum svefnherbergjum. Einnig liggja tvær lagnir frá hitakistunni tilbúnar til að fara í gólfið inná baðherberginu, einnig ekki var klárað að steypa í gólfið inná baðherberginu þar sem það stóð til að breyta sturtunni og leggja þá nýja lögn frá því niðurfalli og tengja inná þá lögn.
Það á eftir að skipta um flest alla glugga í húsinu sem eru komnir á tíma og a.m.k. tvær útihurðir (hurðina út á pallinn á efri hæð og hurðina út í garð á neðri hæð)
Það á eftir að ganga frá götum þar sem ofnar voru í herbergjum á neðri hæð
Eldhús innréttingin er orðin lúin.