Fasteignaleitin
Skráð 17. okt. 2024

Spánn-la Finca Resort

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
370 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
261.000.000 kr.
Fermetraverð
705.405 kr./m2
Svalir
Pallur
Fasteignanúmer
9999997
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Lóðarréttindi
Eignarlóð
FRÁBÆRT ÚTSÝNI YFIR GOLFVÖLLINN.
Costablancaeignir.is og Miðbær fasteignasala kynna óhemjuglæsilegt og stórt einbýli á tveim hæðum og með stórum kjallara, einkasundlaug og sér garði á La Finca golfvellinum. Sérlega glæsileg hús með miklu alrými, þremur svefnherbergjum, fataherbergi og tveim baðherbergjum. Kjallarinn býður upp á bílskúr, sjónvarpsherbergi, skrifstofu eða fit-ness room. Stór lóð og bílastæði innan lóðar.
Eignin er sérlega vönduð og glæsileg. Einkasundlaug og óhindrað útsýni yfir La Finca golfvöllinn. 


Nánari lýsing:
Falleg aðkoma er að húsinu og skiptist það í gott eldhús, með góðri tengingu við útisvæði og stofu/borðstou í rúmgóðu alrými. Rafmagnstæki fylgja í eldhúsi.
Tvö svefnherbergi og annað með sér baðherbergi  og auk þess eitt svefnherbergi til viðbótar. Á efri hæð er stór lúxus hjónasvíta með fataherbergi og sér baðherbergi og útgengi út á stórar svalir með útsýni yfir golfvöllinn og möguleika á heitum pott.
Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með glæsilegri aðstöðu til að njóta sólar, grilla ofl. Einkasundlaug og grill-svæði.
Rúmgóður kjallari (262 fm) undir húsinu, sem býður upp á mikla möguleika, bíósal, ýmsar tómstundir og vinnu aðstöðu. Þar er þegar tilbúin bílageymsla, mjög glæsileg. 
Gólfhiti er í allri eigninni.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. Speglar og sturtugler fylgir og auk þess home automotion kerfi.

Stærð húss: 190,6 fm
Stærð kjallara: 262 fm
Stærð verandar 153 fm
Stærð lóðar 528 fm.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, í örstuttu göngufær við hið glæsilega klúbbhús á La Finca golfvellinum 5* golf og spa hótel og nýjan og glæsilegan þjónustukjarna þar sem er að finna gæðaveitingastaði, vínsmökkun og verslanir. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, Las Ramblas, Lo Romero, Vistabella, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.

La Finca Resort er í um 30 mín akstur í suður frá Alicante. Ca. 20 mín akstur er niður á ströndina og ca. 20 mín akstur í vinsælu verslunarmiðstöðina, La Zenia Boulevard. Ennfremur er stutt að keyra í skemmtilega bæi í næsta nágrenni, t.d. Algorfa og Ciudad Quesada.

Lúxuseign fyrir kröfuharða golfara sen og þá sem vilja njóta lífsins á fallegum kyrrlátum stað. 

Aðeins örfá hús í boði, tilbúin til afhendingar í maí 2028

Verð 1.800.000 Evrur. (261.000.000 ISK miðað við gengi 1E=145 ISK)

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Sérlega glæsileg hús með góðu alrými, þremur svefnherbergjum, fataherbergi og þremur baðherbergjum. Stór sér lóð. Bílastæði inni á lokaðri lóð.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Traustur byggingaraðili, 

Allar upplýsingar gefur Sigfús Aðalsteinsson, löggiltur fasteignasali, gsm 8989979. sigfus@midbaer.is. Yfir 25 ára reynsla í sölu eigna á Costa Blanca húsæðismarkaðinum.


 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Miðbær fasteignasala
www.midbaer.is

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Leirvogstunga 21
DJI_0006.jpg
Skoða eignina Leirvogstunga 21
Leirvogstunga 21
270 Mosfellsbær
370.9 m2
Einbýlishús
845
741 þ.kr./m2
275.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 45
Skoða eignina Hjallabraut 45
Hjallabraut 45
220 Hafnarfjörður
157.5 m2
Raðhús
423
1073 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Huldugil 58
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Huldugil 58
Huldugil 58
603 Akureyri
92.3 m2
Raðhús
312
855 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaból
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Laugaból
Laugaból
271 Mosfellsbær
1,374.3 m2
Einbýlishús
735
189 þ.kr./m2
260.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin