V-Gata 22, 806 Selfoss
Eignaland og Jens Magnús lgf. kynna í einkasölu V-Gata 22, 806 Selfoss. Glæsilegt sumarhús á fallegum stað við Þingvallavatn, byggt árið 2009. Eignin er alls 134,9 m² að stærð, þar af bílskúr 30,2 m², og stendur á stórri 4.246 m² eignarlóð alveg niður við vatnið. Húsið er með steyptri plötu og gólfhita í allri eigninni, sem tryggir notalegan hita allt árið. Yfirbyggður sólpallur umlykur húsið og býður upp á einstakt útsýni yfir Þingvallavatn og nærliggjandi náttúru. Á pallinum er baðhús með heitum potti og saunu. Að innan er húsið klætt hvíttuðum panel með parketi á gólfum, sem gefur hlýlegt og bjart yfirbragð. Alrýmið er rúmgott og opið, með kamínu sem eykur notalegheit. Eldhúsið er vel skipulagt með ljósri innréttingu. Eignin státar af þremur rúmgóðum svefnherbergjum og baðherbergi með útgengi á pall. Þetta er virkilega falleg eign á frábærum stað sem býður upp á friðsæld og nálægð við náttúruna á lokuðu sumarhúsasvæði. Allar nánari upplýsingar Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.isAðalrými hússAðalinngangur leiðir inn í rúmgott og bjart alrými með eldhúsi, stofu og svefnálmu.
Anddyri: Með parketi á gólfi og hvíttuðum panel á veggjum.
AlrýmiRúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi og hvíttuðum panel. Upptekin loft og loftabitarnir eru sýnilegir og gefa rýminu flottan karakter. Kamína er í stofu og stórir gluggar bjóða upp á mikla náttúrulýsingu og útsýni yfir Þingvallavatn. Útgengi er á sólpall.
EldhúsMeð ljósri innréttingu og góðu vinnuplássi. Parket er á gólfi og hvíttaður panel á veggjum. Opið inn í stofu.
Svefnherbergi IRúmgott herbergi með parketi á gólfi og hvíttuðum panel á veggjum. Er með fataskáp.
Svefnherbergi IIRúmgott herbergi með parketi á gólfi og hvíttuðum panel á veggjum.
Svefnherbergi IIIRúmgott herbergi með parketi á gólfi og hvíttuðum panel á veggjum. Er með fataskáp.
BaðherbergiFlísalagt gólf og veggir. Með sturtuklefa og útgengi á pall.
BílskúrBílskúr er frístandandi, með gönguhurð og bílskúrshurð. Flísalagður með góðu vinnuborði í endanum.
PallurPallurinn er mjög stór og vandaður umhverfis húsið. Gríðarlega fallegt útsýni er af pallinum. Við pallinn er baðhús með heitum potti og saunu. Útgengt er um hurð af baðherbergi í baðhúsið.
Virkilega falleg eign á frábærum stað.
Sjón er sögu ríkari.
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is
***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***