BYR fasteignasala kynnir í einkasölu SKÓGARSEL 13A íbúð 102, 700 Egilsstaðir. Íbúð á neðri hæð í litlu fjölbýlishúsi á Egilsstöðum.
Stutt í alla almenna þjónustu, Selskógur í „bakgarðinum". Smellið hér fyrir staðsetningu.Húsið er steypt og timbur, byggt árið 2005, íbúð samtals 83.6 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Björt þriggja til fjögurra herbergja íbúð með sér inngangi á fyrstu hæð. Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem útgengt er á steypta verönd með skjólveggjum. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni ásamt geymslu með stórum glugga, notað sem svefnherbergi. Hjónaherbergið hefur fjórfaldan fataskáp en þaðan er útgengt í bakgarðinn. Íbúðin er parketlögð og fataskápar eru í herbergjum. Endurnýjað baðherbergi og flísalagt þvottahús með vaski.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471-2858 |**Eignin verður fyrst sýnd á opnu húsi, mánudaginn 30. mars kl. 12.30-13.00**
Nánari lýsing: Anddyri, flísar á gólfi, fataskápur og skóskápur (fylgir).
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, parket á gólfi, útgengt er úr stofu út á verönd með skjólveggjum.
Eldhús, U-laga innrétting, helluborð og vifta, ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu (getur fylgt).
Herbergi I, hjónaherbergi, fjórfaldur
fataskápur, parket og hiti í gólfi, útgengt út í bakgarð.
Herbergi II, parket á gólfi, tvöfaldur fataskápur (
geymsla samkvæmt teikningu).
Herbergi III, rúmgott, parket á gólfi, laus fataskápur (fylgir).
Baðherbergi, flísar á gólfi og á veggjum í sturtuhorni (sturta og flísar endurnýjað 2024), vaskinnrétting, upphengt salerni, sturta og handklæðaofn, rafræn loftun.
Þvottahús, flísar á gólfi, vaskur í borði, pláss fyrir tvær vélar, hillur.
Útigeymsla, undir stiga og stigapalli, sameiginlega með íbúðum í 13A (fjórar íbúðir).
Skógarsel 13 A, B og C er fjölbýlishús á tveimur hæðum, sex íbúðir eru á hvorri hæð. Húsið er byggt úr steypu og timbri, klætt að utan með liggjandi járnklæðningu.
Þak er risþak klætt bárujárni. Timbur gluggar og hurðar. Lóð er sameiginleg, gróin, hellulögð stétt liggur að inngangi íbúðar, bílastæði eru malbikuð í sameign. Sérnotaflötur fylgir íbúð, steypt verönd með skjólveggjum er framan við íbúð.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 227-4991. Skógarsel 13A, Múlaþing.Stærð: Íbúð 83.6 m².
Brunabótamat: 47.350.000kr.
Fasteignamat: 45.650.000 kr.
Byggingarár: 2005.
Byggingarefni: Steypt+timbur.
Eignarhald:
01.0102- Séreign. Rými 01.0102 Íbúð a 83.6 Brúttó m².
01 Y1 - Sameign sumra. Rými 01.0107 Útigeymsla a 2.4 Brúttó m².
01 X - Sameign allra. Rými 01.X Umferðarrými 5.5 Brúttó m².
Landeignanúmer:197967. Íbúðarhúsalóð 2.264,6 m²