Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima Borgarnesi fasteignasala kynna:
Reisulegt eldra hús með tveimur íbúðum, samtals 138,4 fm, við Egilsgötu 23, Borgarnesi.
Um er að ræða steinsteypt hús byggt 1929 á þremur hæðum og hefur húsið fengið ýmislegt viðhald frá 2004-2026, en kominn er tími á að endurnýja innanhúss.
Að innan eru báðar íbúðir gamlar, báðar með sérinngangi og komið er að viðhaldi á sumu, flott tækifæri fyrir handlaginn aðila til að útbúa sér heimili með aukaíbúð eða aðila/félag að vera með tvær íbúðir í útleigu.
Ath. báðar íbúðir eru á sama rafmagns- og heitavatnsmæli.
** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is
Íbúð á 1.hæð (57,8 fm):
Gengið er inn sunnanmeginn þar sem garðurinn er. Komið er inn í garðinn með nýlegri verönd við húsið. Þaðan er gengið upp tröppur og inn í hol/gang. Beggja vegna gangs eru herbergi, annað verið nýtt sem stofa og hitt sem svefnherbergi. Innst í íbúðinni er eldhús með eldri innréttingu, ísskáp og uppþvottavél. Þar til hliðar er herbergi með þvottahúsi og sturtuklefa. Lítið gestasalerni er svo í sér rými. Parket er á gólfi herbergja, gangs og eldhúss, steypt málað gólf í votrýmum.
Íbúð á 2. og 3.hæð (80,6 fm birtir):
Gengið er inn norðanmeginn (Egilsgötu). Komið er inn í stigahús þar sem áður var hægt að ganga niður á 1.hæð í hina íbúðina og svo er gegnið upp eina hæð upp í íbúðina. Á 1.hæð er gengið inn í fjögur rými. Eldhúsið er með eldri innréttingu og kork á gólfi. Tvö herbergi eru á hæðinni með parketi ásamt baðherbergi með timburklæðningu á veggjum, baðkari og dúk á gólfi. Gengið er svo áfram upp stiga á rishæðina sem geymir gluggaust herbergi ásamt stóru herbergi með glugga, bæði herbergin með eldra parketi. Töluvert mikið af geymslurými er út við hliðar hæðarinnar undir súð þaksins.
Helstu endurbætur síðustu ára og athugasemdir um ástand húss:
2026 var á þaki sett nýtt járn á og húsið málað klæðning á hliðum.
2026 var bíslag sunna meginn lagað og settur nýjur gluggi.
2026 voru stormjárn opnanlegra faga yfirfarin og endurnýjuð það sem þurfti.
2023 var þrýstiloki fyrir heitt vatn settur nýr á inntak.
2007 vöru opnanleg fög endurnýjuð, allt gler er gamalt en nýlega fór fagmaður yfir timbrið og mat það í lagi, væri nóg að skipta um gler og lista, opnanleg fög í lagi enn sem komið er.
2004/2006 var klæðning að utan á húsinu sett ný svo máluð 2026 allar hliðar.
Ofnalagnir og ofnar, er líklega allt upprunalegt.
Rafmagn og tafla, þá eru báðar íbúðir á sama rafmagni og sama hitamæli. Rafmagn í töflu er ekki upprunalegt, nútímaútsláttur og öryggi, snjallmælir o.þ.h.
Dren með húsi og frárennsli út í götu er líklega upprunalegt.
Frárennslislagnir innanhúss og niður að inntaki voru settar nýjar ca. 2007/2008 og þá sett plast.
Áhugaverð eign með góða staðsetningu í Borgarnesi og mikla möguleika til framtíðarnotkunar fyrir réttan aðila.
Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.