NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS (alla virka daga milli kl.9 og 18) Í SÍMA 771-5211 EÐA GUDNYTH@ALDIRFASTEIGNIR.IS
ALDIR og GUÐNÝ ÞORSTEINS löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Sandgerðisvegur 7 – Rúmgott og mikið endurnýjað 191,8fm einbýlishús á 2 hæðum ásamt 34fm bílskúr (óeinangraður) í Garði, Suðurnesjabæ.
Samtals 225,8fm.Fallegt og rúmgott 5 herbergja fjölskylduhús sem hefur verið mikið endurnýjað á undanförnum árum, bæði að innan og utan. Eignin er með rúmgott samverurými, rúmgott eldhús og mikla lofthæð í stofu. Umfangsmiklar endurbætur hafa meðal annars náð til lagna, rafmagns, glugga, þaks, einangrunar og utanhússklæðningar.
HELSTU KOSTIR:Rúmgott einbýlishús á tveimur hæðum
Mikil lofthæð í stofu
Fallegt og rúmgott eldhús með eyju
Baðherbergi og gestasalerni
4 svefnherbergi
Gólfhiti á neðri hæð
Endurnýjaðar rafmagns-, neysluvatns- og skolplagnir
Endurnýjaðir gluggar og útihurðir
Endurnýjuð þakklæðning
Húsið klætt að utan og einangrað bæði að innan og utan
Ljósleiðari
NÁNARI LÝSING EIGNAR:
Efri hæð:Anddyri og hol: Rúmgott og bjart með stórum fataskáp með speglahurðum.
Eldhús: Sérlega rúmgott eldhús með viðarlitaðri innréttingu, góðu skápaplássi og stórri eyju með helluborði og háfi (bráðabirgða borðplötur á borðum). Ofn í vinnuhæð. Gluggar á tveimur hliðum hleypa góðri birtu inn í rýmið.
Borðstofa: Rúmgóð og björt í opnu rými við eldhús. Gott pláss fyrir stórt borðstofuborð.
Stofa: Björt og rúmgóð með mikilli lofthæð og gluggum á fleiri en einni hlið. Innfelld lýsing í lofti.
Gestasalerni: Viðarlituð innrétting, handlaug, upphengt salerni og gluggi.
Parket er á gólfum efri hæðar.Stigi: Stiga var breytt - var rýmið opnað og stiginn stækkaður - það á eftir að leggja gólfefni á hann en til eru einhverjar flísar eins og er á gólfum neðrihæðar.
Neðri hæð:Hol og gangur: Flísalagt með innfelldri lýsingu.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi og flísum á gólfi.
Barnaherbergi: Rúmgott og bjart með gluggum á tveimur hliðum og flísum á gólfi.
Önnur herbergi: Á neðri hæð eru einnig 2 herbergi sem í dag eru nýtt sem skrifstofa og tölvuherbergi. Bæði eru með gluggum og flísum á gólfum.
Baðherbergi og þvottaaðstaða: Er með ljósri innréttingu, rúmgóðri sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og glugga. Góð þvottaaðstaða með innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Neðri hæð er flísalögð með gólfhita.Bílskúr: Sérstæður 36fm óeinangraður bílskúr með gluggum.
FRAMKVÆMDIR OG ENDURBÆTUR:Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á undanförnum árum. Samkvæmt upplýsingum seljanda hefur verið ráðist í eftirfarandi framkvæmdir:2014Húsið klætt að utan og einangrað.
Húsið er einangrað bæði að innan og utan.
Þakklæðning endurnýjuð.
Gluggar og útihurðir endurnýjaðar.
Drenlögn lögð við sökkul hússins.
2018Skolplagnir endurnýjaðar.
Allar neysluvatnslagnir, bæði fyrir heitt og kalt vatn, endurnýjaðar.
Hitaveitugrind endurnýjuð.
Allar raflagnir endurnýjaðar.
Ofnar og gólfhiti endurnýjuð.
Loftlýsing endurnýjuð.
Milliloft útbúið fyrir ofan eldhús.
2019Eldhúsinnrétting endurnýjuð.
Gestasalerni á efri hæð endurnýjað.
Parket lagt á efri hæð.
Gluggakistur endurnýjaðar.
Rafmagnstafla endurnýjuð.
Allir veggir á neðri hæð endurnýjaðir og einangraðir.
2021Baðherbergi á neðri hæð endurnýjað.
2022Ljósleiðari lagður.
2024Öll herbergi á neðri hæð endurnýjuð.
Nýjar gólfflísar lagðar á neðri hæð.
Unnið við gólfhita á neðri hæð.
Samkvæmt upplýsingum seljanda var rafmagns- og lagnavinna unnin af löggiltum iðnmeisturum. Leitað var ráðgjafar varðandi áhrif breytinga á innra skipulagi á burðarvirki hússins og samkvæmt upplýsingum seljanda var burðarvirki þess ekki breytt.Ólokin vinna og frágangur:Þrátt fyrir umfangsmiklar endurbætur á eigninni stendur eftir ákveðin frágangsvinna:
Klæða stiga á milli hæða - Setja upp innihurðir - Gólflistar á efri hæð -Loftlistar á neðri hæð - Borðplata á eldhúsinnréttingu (í dag er bráðabirgðar plata á eldhúsbekk og eyju) - Ljúka við fyrirhugaðan pall en búið er að grafa fyrir honum - Búið er að grafa skurð vegna fyrirhugaðrar hleðslustöðvar fyrir rafbíla. Eftir er að leggja rafmagn í skurðinn og loka honum.
Eignin selst í núverandi ástandi og mun seljandi ekki ljúka framangreindri vinnu fyrir afhendingu.Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vilja Aldir því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila (0,4% við fyrstu kaup einstaklinga).
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. – samkvæmt gildandi gjaldskrá sýslumanns.
Lántökugjald lánastofnunar – samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
Umsýsluþóknun til fasteignasölu – 79.900 kr. m.vsk.
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.