Fasteignaleitin
Skráð 9. júlí 2026

Ásakór 7

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
127.8 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
703.443 kr./m2
Brunabótamat
61.900.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
228182210
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

*** Fjögur svefnherbergi - möguleg skipti á dýrari eign ***

Sala féll á fyrirvara kaupenda og eignin komin aftur í sölu. Lækkað verð - aðeins um kr. 700.000 á fermetra. 

Heimili fasteignasala og Ragnar Þorgeirsson löggiltur fasteignasali (s. 774 7373 / ragnar@heimili.is) kynna góða 4-5 herbergja íbúð á 3. hæð í góðu lyftuhúsi í Ásakór. Eignin er samtals 127,8 fm, vel skipulögð og telur stofu og eldhús í opnu rými, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús sem er innan íbúðar. Sérgeymsla 7,8 fm. og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð. Stórar suðursvalir gefa eigninni aukið gildi.


Komið er að íbúðinni innst á svalagangi.  Innaf snyrtilegri forstofu, með fataskáp sem nær upp í loft og flísar á gólfi, er bjart alrými; Eldhús með góðri viðar innréttingu og stofurýmið ákaflega rúmgott og bjart, góður suðurgluggi og stórar svalir.
Hjónaherbergið er rúmgott með miklu skápaplássi. Tvö góð barnaherbergi eru i íbúðinni, með góðum skápum.  Gengt forstofu er 4. herbergið, sem samkv. teikningu er borðkrókur en rýmið er skemmtilega nýtt á þennan hátt og lokað með rennihurð.  
Baðherbergið er vel búið, flísalagt í hólf og gólf, þar er lítil innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn, baðkar og sturtuklefi.  Þvottahús er við hliðina á baðherberginu.

Viðarparket er á öllum gólfum nema forstofu, baðherbergi og þvottahúsi en þar eru flísar.

Björt og falleg eign og ákaflega heppileg fyrir barnafjölskyldu.  Húsið virðist njóta góðs viðhalds og stendur við grænt svæði.  Stutt er í leik- og grunnskóla, verslun og þjónustu. Njóta má útiveru og gönguleiða um Guðmundarlund, Heiðmörk, við Elliðavatn og aðrar náttúruperlur.
- Seljendur leita að sérbýli með garði eða góðum palli.

Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson í síma 774 7373 eða ragnar@heimili.is


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lækjasmári 100
Bílastæði
Opið hús:16. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Lækjasmári 100
Lækjasmári 100
201 Kópavogur
146.2 m2
Hæð
413
813 þ.kr./m2
118.900.000 kr.
Skoða eignina Kjarrmóar 25
Skoða eignina Kjarrmóar 25
Kjarrmóar 25
210 Garðabær
84.8 m2
Parhús
211
919 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Hestavað 7
Opið hús:14. júlí kl 18:00-18:30
Ytra útlit
Skoða eignina Hestavað 7
Hestavað 7
110 Reykjavík
111 m2
Fjölbýlishús
312
779 þ.kr./m2
86.490.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Spánn - Costa Blanca
145 m2
Fjölbýlishús
423
849 þ.kr./m2
123.100.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin