Fasteignaleitin
Skráð 15. nóv. 2024
Deila eign
Deila

Austurmörk 28E - 104

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurland/Hveragerði-810
81 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
62.900.000 kr.
Fermetraverð
776.543 kr./m2
Fasteignamat
3.050.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2532216
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Hellulögð verönd
Lóð
1,21
Upphitun
Hitaveita ofnar + gólfhiti á baðherbergi
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
1 - Samþykkt
Kvöð / kvaðir
Vegna lögveða til tryggingar gjalda í sveitasjóð, skjal nr. 447-A-002825/2018
BYR fasteignasala kynnir AUSTURMÖRK 28E íbúð 104, 810 Hveragerði. Ný þriggja herbergja íbúð á neðri hæð í nýju fjölbýlishúsi í Tívolíbyggð Hveragerði. 
Húsið er vel staðsett í miðsvæðis í Hveragerði, stutt í alla almenna þjónustu, útivist og ýmiskonar afþreyingu, sjá nánar hér.

TIL AFHENDINGAR 15. desember 2024.  VELKOMIN Í HVERAGERÐI!
BYR FASTEIGNASALA | 483-5800 | byr@byrfasteignasala.is |


Eignin skiptist í íbúð 76.8 m² og geymslu 4.2 m² samtals 81.0 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS. 
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla. 

Aðalverktaki JÁVERK ehf. T.ark arkitektar eru aðalhönnuðir hússins. Burðarþolshönnun og lagnahönnun Verkfræðistofa Reykjavíkur. Raflagnahönnun Voltorka ehf.
Tívólibyggð samanstendur af sjö fjöleignarhúsum með samtals 80 íbúðum. Smellið hér fyrir heimasiðu Tívolíbyggðar.

Íbúðin er byggð samkvæmt kröfum Umhverfisstofnunar til að hljóta Svansvottun að framkvæmdum loknum. 
Svansvottaðar íbúðir eru almennt taldar betri fyrir umhverfið og heilsuna, enda eru strangar kröfur um innihald skaðlegra efna í öllu byggingarefni.
Í íbúðinni hefur verið tryggð góð innivist með góðri loftræstingu og hljóðvist. Hönnun byggingarinnar miðar að því að orkunotkun sé hagkvæm. 
Smellið hér fyrir upplýsingar um Svansvottun.


Nánari lýsing:
Anddyri með fataskáp.
Alrými með stofu og eldhúsi. Útgengt er frá alrými út á hellulagðan sérafnotareit sem til suðurs. 
Eldhús, sérsmíðuð innrétting, heimilistæki frá AEG spanhelluborð og gufugleypir, ofn, kæli- og frystiskápur sem og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu. 
Vaskur og Grohe blöndunartæki eru í eldhúsinu og innbyggð lýsing undir efri skápum. 
Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni bæði með fataskápum.
Baðherbergi, flisar á gólfi og á veggjum í sturtu, upphengt salerni, vaskinnrétting, speglaskápur, Grohe blöndunartæki. Gólfhiti er á baðherbergi. 
Þvottaaðstaða er á baðherbergi.
Í sameign er sér geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.  

Íbúðinni verður skilað samkvæmt skilalýsingu. Flísar verða á gólfum baðherbergis. Öðrum gólfum er skilað án gólfefna með kvöðum um val á Svansvottuðu gólfefni.
Miðað er við að gólfefni sé ekki meira en 15 mm að þykkt. Innréttingar eru allar sérsmíðaðar frá Selós. Íbúð er upphituð með ofnum á lokuðu kerfi með varmaskipti. Gólfhiti er á gólfi baðherbergis. 
Loftræsikerfi með varmaendurvinnslu er í hverri íbúð. Vélrænt útsog er í geymslum.

Í svansvottuðum byggingum hefur allt byggingarefni sem sett er í bygginguna verið samþykkt og uppfyllir kröfur svansins.
Þær kröfur snúa aðallega að því að byggingarefnin innihaldi ekki eiturefni sem losna út í inniloftið í íbúðinni.
Gæta skal að því byggingarefni sem keypt eru inn í íbúðina uppfylli þessar sömu kröfur eins og t.d. gólfefni og allt undirlag sem því fylgir, málning og speglar.

Austurmörk 28 er 9 íbúða, tveggja hæða hús. Húsið er staðsteypt og klætt að utan með ál-trapísuklæðningu frá Málmtækni.
Þakplata er staðsteypt frágengið með þakdúk frá Sika og þakmöl. Gluggar og hurðar eru álklæddir timburgluggar frá Ideal Combi.
Lóð er frágengin með malbikuðum bílastæðum og stígum. Yfirborð við inngang sem og sérafnotareitir er hellulagt. Önnur svæði eru frágengin með grasi. 
Sameiginleg bílastæði eru á lóð. Tengipunktar fyrir rafbílahleðslur eru í grennd við bílastæði. Sameiginleg sorpskýli eru á lóð. 
Íbúðinni fylgir sérafnot á lóð, sérnotareitur íbúðar er eins og grunnmynd sýnir. 

Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða eru gildandi ef upp kemur misræmi milli þeirra og annarra gagna.
Allt auglýsinga- og kynningarefni eins og tölvugerðar myndir og teikningar eru eingöngu til hliðsjónar.
Laus búnaður og annað sem kann að vera sýnt á teikningum eða þrívíddar myndum en er ekki talið upp í skilalýsingu fylgir þannig ekki íbúðum.
Athygli er vakin á því að á meðan byggingarframkvæmdum stendur áskilur seljandi sér allan rétt til að gera tækni-, efnis- og útlitsbreytingar.
 
Athugið að kaupendur greiða stimpil-, þinglýsingar- og lántökugjald vegna kaupsamnings og nýrra lána, auk þjónustu- og umsýslugjalds til fasteignasölunnar.
Um er að ræða eign í byggingu og brunabótamat liggur ekki fyrir, kemur það í hlut kaupanda að greiða skipulagsgjald 0,3% þegar þess verður krafist.
Húsfélag hefur ekki verið stofnað og kemur það í hlut nýrra eigenda að stofna húsfélag vegna sameignar.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byr fasteignasala
https://www.byrfasteign.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina LANGAHRAUN 13 ÍBÚÐ 202
Langahraun 13 Íbúð 202
810 Hveragerði
98.2 m2
Fjölbýlishús
413
630 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarbrún 86
Skoða eignina Heiðarbrún 86
Heiðarbrún 86
810 Hveragerði
91.2 m2
Raðhús
312
679 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina AUSTURMÖRK 28B - 101
Austurmörk 28B - 101
810 Hveragerði
81 m2
Fjölbýlishús
312
777 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina AUSTURMÖRK 28A - 205
Austurmörk 28A - 205
810 Hveragerði
81 m2
Fjölbýlishús
312
789 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin