Fasteignaleitin
Skráð 26. nóv. 2024
Deila eign
Deila

Austurmörk 26A - 305

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurland/Hveragerði-810
77.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
62.900.000 kr.
Fermetraverð
810.567 kr./m2
Fasteignamat
2.970.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Lyfta
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2529386
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
5
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
1,49
Upphitun
Hitaveita ofnar + gólfhiti á baðherbergi
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
2 - Botnplata
Kvöð / kvaðir
Vegna lögveða til tryggingar gjalda í sveitasjóð, skjal nr. 447-A-002825/2018.
BYR fasteignasala kynnir AUSTURMÖRK 26A íbúð 305, 810 Hveragerði. Ný fjögurra herbergja endaíbúð á efstu hæð í nýju fjölbýlishúsi í Tívolíbyggð Hveragerði. 
Húsið er vel staðsett í miðsvæðis í Hveragerði, stutt í alla almenna þjónustu, útivist og ýmiskonar afþreyingu, sjá nánar hér.

TIL AFHENDINGAR í desember 2024.  VELKOMIN Í HVERAGERÐI! 
BYR FASTEIGNASALA | 483-5800 | byr@byrfasteignasala.is |


Eignin skiptist í íbúð 74.1 m² og geymslu 3.5 m² samtals 77.6 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS. 
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla. 

Aðalverktaki JÁVERK ehf. T.ark arkitektar eru aðalhönnuðir hússins. Burðarþolshönnun og lagnahönnun Verkfræðistofa Reykjavíkur. Raflagnahönnun Voltorka ehf.
Tívólibyggð samanstendur af sjö fjöleignarhúsum með samtals 80 íbúðum. Smellið hér fyrir heimasiðu Tívolíbyggðar.

Íbúðin er byggð samkvæmt kröfum Umhverfisstofnunar til að hljóta Svansvottun að framkvæmdum loknum. 
Svansvottaðar íbúðir eru almennt taldar betri fyrir umhverfið og heilsuna, enda eru strangar kröfur um innihald skaðlegra efna í öllu byggingarefni.
Í íbúðinni hefur verið tryggð góð innivist með góðri loftræstingu og hljóðvist. Hönnun byggingarinnar miðar að því að orkunotkun sé hagkvæm. 
Smellið hér fyrir upplýsingar um Svansvottun.


Nánari lýsing:
Anddyri með fataskáp.
Alrými með stofu og eldhúsi. Útgengt er frá alrými út á svalir til suðurs. 
Eldhús, sérsmíðuð innrétting, heimilistæki frá AEG spanhelluborð og gufugleypir, ofn, kæli- og frystiskápur sem og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu. 
Vaskur og Grohe blöndunartæki eru í eldhúsinu og innbyggð lýsing undir efri skápum. 
Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, öll með fataskápum.
Baðherbergi, flisar á gólfi og á veggjum í sturtu, upphengt salerni, vaskinnrétting, speglaskápur, Grohe blöndunartæki. Gólfhiti er á baðherbergi. 
Þvottaaðstaða er á baðherbergi.
Í sameign er sér geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.  

Íbúðinni verður skilað samkvæmt skilalýsingu. Flísar verða á gólfum baðherbergja. Öðrum gólfum er skilað án gólfefna með kvöðum um val á Svansvottuðu gólfefni.
Innréttingar eru allar sérsmíðaðar frá Selós. Íbúð er upphituð með ofnum á lokuðu kerfi með varmaskipti. Gólfhiti er á gólfi baðherbergis. 
Loftræsikerfi með varmaendurvinnslu er í hverri íbúð. Vélrænt útsog er í geymslum.
,
Þær kröfur snúa aðallega að því að byggingarefnin innihaldi ekki eiturefni sem losna út í inniloftið í íbúðinni. 
Gæta skal að því byggingarefni sem keypt eru inn í íbúðina uppfylli þessar sömu kröfur eins og t.d. gólfefni og allt undirlag sem því fylgir, málning og speglar.

AUSTURMÖRK 26 er 13 íbúða, þriggja hæða hús. Húsið er staðsteypt og klætt að utan með ál-trapísuklæðningu frá Málmtækni.
Þakplata er staðsteypt frágengið með þakdúk frá Sika og þakmöl.Gluggar og hurðar eru álklæddir timburgluggar frá Ideal Combi.
Lóð er frágengin með malbikuðum bílastæðum og stígum. Yfirborð við inngang sem og sérafnotareiti er hellulagt. Önnur svæði eru frágengin með grasi. 
Sameiginleg bílastæði eru á lóð. Tengipunktar fyrir rafbílahleðslur eru í grennd við bílastæði. Sameiginleg sorpskýli eru á lóð. 

Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða eru gildandi ef upp kemur misræmi milli þeirra og annarra gagna.
Allt auglýsinga- og kynningarefni eins og tölvugerðar myndir og teikningar eru eingöngu til hliðsjónar.
Laus búnaður og annað sem kann að vera sýnt á teikningum eða þrívíddar myndum en er ekki talið upp í skilalýsingu fylgir þannig ekki íbúðum.
Athygli er vakin á því að á meðan byggingarframkvæmdum stendur áskilur seljandi sér allan rétt til að gera tækni-, efnis- og útlitsbreytingar.
 
Athugið að kaupendur greiða stimpil-, þinglýsingar- og lántökugjald vegna kaupsamnings og nýrra lána, auk þjónustu- og umsýslugjalds til fasteignasölunnar.
Um er að ræða eign í byggingu og brunabótamat liggur ekki fyrir, kemur það í hlut kaupanda að greiða skipulagsgjald 0,3% þegar þess verður krafist.
Húsfélag hefur ekki verið stofnað og kemur það í hlut nýrra eigenda að stofna húsfélag vegna sameignar.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byr fasteignasala
https://www.byrfasteign.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina AUSTURMÖRK 28E - 104
Opið hús:30. nóv. kl 13:00-13:30
Austurmörk 28E - 104
810 Hveragerði
81 m2
Fjölbýlishús
312
777 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina AUSTURMÖRK 26B - 101
Opið hús:30. nóv. kl 13:00-13:30
Austurmörk 26B - 101
810 Hveragerði
78.9 m2
Fjölbýlishús
413
759 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina AUSTURMÖRK 26A - 201
Opið hús:30. nóv. kl 13:00-13:30
Austurmörk 26A - 201
810 Hveragerði
78.5 m2
Fjölbýlishús
413
776 þ.kr./m2
60.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarbrún 86
Skoða eignina Heiðarbrún 86
Heiðarbrún 86
810 Hveragerði
91.2 m2
Raðhús
312
679 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin