Fasteignaleitin
Skráð 20. júlí 2026

Suðurvangur 17

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
79.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
61.900.000 kr.
Fermetraverð
776.662 kr./m2
Fasteignamat
57.350.000 kr.
Brunabótamat
46.600.000 kr.
Mynd af Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 1989
3. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2080006
Landnúmer
122624
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Upprunalegt/yfirfarið
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Lóð
9,36
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Gimli fasteignasala og Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse kynna:  Suðurvangur 17, 220 Hafnarfjörður. Björt og falleg útsýnisíbúð á 3. hæð á einstökum stað í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Nýlega endurnýjað eldhús, Þrjú herbergi, bjart og opið alrými með útgengt á rúmgóðar suðursvalir með fallegu útsýni, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél, góð sameign, gott viðhald er á húsinu. Suðurvangur stendur við Víðistaðatún þar sem stutt ganga er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og útivist. Íbúðin er að hluta undir súð og er gólfflötur mun meiri en fermetrar segja til um.

Bókið skoðun hjá Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse  í síma 7927576, eða gudmunda@gimli.is

NÁNARI LÝSING:
Komið er inn af björtum og snyrtilegum stigagangi í opið alrými sem rúmar eldhús, stofu og borðstofu með útgengt á suðursvalir. Úr alrými er gengið inn í tvö herbergi og bað. Nýlegt parket er á öllum rýmum á hæðinni nema baði sem er flísalagt. Á 2. hæð er gott 10,7 fm herbergi með suðurglugga sem gefur ýmsa möguleika á nýtingu.
Alrými 28fm: Nýleg eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi.  Rúmgóð stofa með útgengt á suðursvalir, góður forstofuskápur, nýlegt eikarparket á gólfum.
Hjónaherbergi 12,6fm: Rúmgott með góðum fataskáp. Nýlegt eikarparket á gólfi.
Herbergi 3,9fm: Að hluta undir súð og því nýtist rýmið vel. Á teikningu er þetta rými skráð sem þvottaherbergi og geymsla en er í dag nýtt sem barnaherbergi. Nýlegt eikarparket á gólfi.
Bað 5,4fm: Rúmgott með sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél. Möguleiki er á að tengja baðkar undir súðinni þar sem allar lagnir eru til staðar. Flísar á gólfi og veggjum.
Herbergi á 2. hæð 10,7fm: Bjart með góðum suðurglugga með útsýni. Í dag er herbergið nýtt sem skrifstofa/bókaherbergi en gefur ýmsa nýtingarmöguleika. Parket á gólfi.
Sérgeymsla 4fm: Í sameign er sérgeymsla með góðu hilluplássi.

Eignin Suðurvangur 17 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 208-0006, birt stærð 79.7 fm. Nánar tiltekið eign merkt 03-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Niðurlag: Falleg og björt eign í góðri staðsetningu. Gott húsfélag og gott almennt viðhald er á húsinu og sameign.
Nánari upplýsingar veitir: Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7927576, tölvupóstur gudmunda@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
03/06/202453.400.000 kr.56.000.000 kr.79.7 m2702.634 kr.
29/06/200916.970.000 kr.20.850.000 kr.79.7 m2261.606 kr.Nei
26/11/200716.040.000 kr.20.000.000 kr.79.7 m2250.941 kr.
12/02/200716.040.000 kr.20.900.000 kr.79.7 m2262.233 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 13
Bílastæði
Skoða eignina Hringhamar 13
Hringhamar 13
221 Hafnarfjörður
84.2 m2
Fjölbýlishús
312
824 þ.kr./m2
69.400.000 kr.
Skoða eignina Svöluás 1
Skoða eignina Svöluás 1
Svöluás 1
221 Hafnarfjörður
84.5 m2
Fjölbýlishús
312
827 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Nónhamar 4
Opið hús:23. júlí kl 12:00-12:15
Skoða eignina Nónhamar 4
Nónhamar 4
221 Hafnarfjörður
80 m2
Fjölbýlishús
312
856 þ.kr./m2
68.500.000 kr.
Skoða eignina Dvergaborgir 3
Efsta hæð
Skoða eignina Dvergaborgir 3
Dvergaborgir 3
112 Reykjavík
86 m2
Fjölbýlishús
312
859 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin