Fasteignaleitin
Opið hús:12. maí kl 17:00-17:30
Skráð 8. maí 2026

Straumsalir 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
158.3 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
124.900.000 kr.
Fermetraverð
789.008 kr./m2
Fasteignamat
104.650.000 kr.
Brunabótamat
76.990.000 kr.
Mynd af Þórdís Björk Davíðsdóttir
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2249515
Landnúmer
186872
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Pappi viðgert 2025
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suð-vestur m/Svalalokun
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
**  HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA  **
 
Þórdís Björk Davíðsdóttur löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:
Fallega og vel skipulagða 5 herbergja íbúð með sérinngangi og bílskúr við Straumsal 1, 201 Kópavogi. Eignin er staðsett í snyrtilegu 6 íbúða fjölbýli þar sem allar íbúðir eru með sérinngang. Sameiginlegur garðurinn snýr til suðvesturs og er einstaklega barnvænn. Sérinngangur íbúðar er af svölum sem liggja eingöngu undir íbúðinni og nýtast því sem auka svalir.
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 158,3 fm sem skiptist í íbúðarrými 130,4 fm, geymslu í sameign 6,6 fm og bílskúr 21,3 fm.

SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT sent til þín samstundis

Húsið hefur fengið gott viðhald síðustu ár:
- 2025 Þakið var lagað í desember - Viðgerð á pappa þaksins, skipt var um allan hringinn.
- 2025 Múrviðgerðir á tröppum og palli voru framkvæmdar um sumarið 
- 2022 Tréverk var málað og húsið sílanborið um sumarið 

Endunýjun innan íbúðar:
2024 Eldhúsinnrétting IKEA ásamt tækjum frá Heimilistækjum
2022 Svalalokun
-  2021-22 Baðherbergi endurnýjað af fyrri eigendum

SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnum
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagna


Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is
 
Innan íbúðar eru fjögur rúmgóð svefnherbergi, bjart opið stofu- og borðstofurými, endurnýjað eldhús, glæsilegt baðherbergi, gott þvottahús og björt og rúmgóð forstofa.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergin eru fjögur og eru þau öll mjög rúmgóð með góðum fataskápum.
Baðherbergið var endurnýjað af fyrri eigendum ca 2021-2022 og er einstaklega smekklegt með walk-in sturtu, upphengdu salerni, góðri innrétting bæði undir handlaug og frístandandi, handklæðaofni og glugga til loftunar. Flísar eru á gólfi og veggjum.
Eldhúsið var endurnýjað árið 2024 og er innrétting frá IKEA. Bætt var við vönduðum tækjum frá Heimilistækjum, þar á meðal auka bakaraofni (og eru því tveir), innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél. Gluggi er til austurs, flísar upp á vegg og parket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu og björtu samliggjandi rými með stórum gluggum til suðurs og suðvesturs sem gefa fallega birtu inn í rýmið. Parket er á gólfi og útgengt er á svalir til suðvesturs með svalalokun sem sett var upp árið 2022.
Bílskúrinn er með epoxý á gólfi með rafdrifinni hurð ásamt heitu og köldu vatni.
Um er að ræða fjölskylduvæna og vel staðsetta eign í vinsælu hverfi í Kópavogi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun og alla helstu þjónustu. Fallegar göngu- og hjólaleiðir eru í næsta nágrenni og hentar eignin einstaklega vel fyrir fjölskyldur sem vilja rúmgóða eign með sérinngangi og góðri útiaðstöðu.
 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.

 
Heimasíða RE/MAX
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
·      Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
·      Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
·      Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
·      Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/01/202267.850.000 kr.98.300.000 kr.158.3 m2620.972 kr.
27/07/202060.900.000 kr.68.700.000 kr.158.3 m2433.986 kr.
09/01/201851.900.000 kr.66.000.000 kr.158.3 m2416.929 kr.
22/08/201129.050.000 kr.38.750.000 kr.158.3 m2244.788 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2001
21.3 m2
Fasteignanúmer
2249515
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.640.000 kr.

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fellsmúli 18
Skoða eignina Fellsmúli 18
Fellsmúli 18
108 Reykjavík
105.4 m2
Fjölbýlishús
413
625 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Skipholt 55
Bílskúr
Skoða eignina Skipholt 55
Skipholt 55
105 Reykjavík
117.4 m2
Fjölbýlishús
413
681 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Dugguvogur 13
Bílastæði
Skoða eignina Dugguvogur 13
Dugguvogur 13
104 Reykjavík
117.9 m2
Fjölbýlishús
423
771 þ.kr./m2
90.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 16
Bílastæði
Opið hús:12. maí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Valshlíð 16
Valshlíð 16
102 Reykjavík
83.6 m2
Fjölbýlishús
211
956 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin