Remax kynnir: Rúmgott og bjart raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr við Túnhvamm 111 í Hafnarfirði. Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 209,3 fm2 sem skiptist í neðrihæð 101,1fm og bílskúr 28,8 fm og efrihæð 80,1 fm. Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Páll Guðmundsson lgf.sími 8619300 eða pallb@remax.is og Úlfar Hrafn lögg,fasteignasali í síma 6238747 eða ulfar@remax.isHér getur þú smellt á linkinn og fengið 3D myndir af þessari eign https://my.matterport.com/show/?m=ovyFTmYbvAiNánari lýsing:Neðri hæð: Komið inn í flísalagt rúmgott
anddyri .
Gangur með parketi á gólfi. Rúmgott og bjart
hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergið hefur verið endurnýjað,flísar í hóf og gólf og stór sturta. Baðinnrétting og upphengt wc. Innangengt í snyrtilegan
bílskúr með epoxy á gólfi. Í enda bílskúrsins er innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Rúmgóð og björt
stofa og
borðstofa með parketi á gólfi. Útgengi úr stofu á flísalagða
verönd og þaðan á viðarverönd með skjólveggjum.
Eldhúsið hefur verið endurnýjað og er með góðu skápaplássi og eyju með morgunverðarborði,granít borðplata á eyju og á innréttingu. Gashelluborð í eyju. Ofn í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél. flísar á gólfi og gólfhiti.
Efri hæð: Komið er upp stiga í flísalagðan gang,útgengi á stórar
svalir. Rúmgott
sjónvarpsrými með arnni og flísum á gólfi. Tvö
barnaherbergi með parketi á gólfum ( Voru þrjú áður og sameinuð í 2 ). Lítið
tómstundarherbergi. Baðherbergi með flísum og baðkari og upphengdu wc, innrétting með neðri og efri skápum.
Bílaplanið er hellulagt með hitalögn.
Frábær staðsetning í barnvænuhverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Páll Guðmundsson lgf.sími 8619300 eða pallb@remax.is og Úlfar Hrafn lögg,fasteignasali í síma 6238747 eða ulfar@remax.is- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum viltu frítt söluverðmat ekki hika við að vera í sambandi sími 861-93300 Páll og eða pallb@remax.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.