Fasteignaleitin
Opið hús:28. maí kl 16:30-17:15
Skráð 22. maí 2026

Furugrund 66

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
68.4 m2
3 Herb.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
875.731 kr./m2
Fasteignamat
55.650.000 kr.
Brunabótamat
37.800.000 kr.
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2060824
Landnúmer
114431
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Upprunalegt/Ekki vitað.
Raflagnir
Upprunalegt/Ekki vitað.
Frárennslislagnir
Upprunalegt/Ekki vitað.
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir þeir sem voru lélegir 2024-2025 .
Þak
Endurnýjað 2019, þak, rennur og niðurföll.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
V-svalir.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 3ja herb. endaíbúð á 1. hæð að Furugrund 66 í Kópavogi. Út frá svefnherbergi eru rúmgóðar svalir. Húsið er nýlega viðgert og verið skipt um hluta af gluggum. Einnig hefur þakjárn, rennur og niðurfall verið endurnýjað. Íbúðin hefur sömuleiðis verið mikið endurnýjuð. Frábær staðsetning neðst í Fossvoginum við íþróttasvæði HK og leik- og grunnskóla. Í Fossvoginum eru hjóla- og göngustígar, leiksvæði, strandblakvellir og frispígolf. Frábært til útivistar.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 


Eignin skiptist í forstofuhol, stofu, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 68,4 m2.

*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!

Smelltu hér og þú færð söluyfirlit strax

Nánari lýsing:
Forstofa
 er inn af dúkalögðum stigagangi. Elvarnarhurð. Innan íbúðar er komið inn á parketlagt hol. Parket er nýlegt og flæðir um flest rými íbúðar. Skápur í anddyri getur fylgt.
Eldhús er á hægri hönd þegar komið er inn í íbúð. Nýleg hvít og brún eldhúsinnrétting á tveimur veggjum. Ofn, helluborð, vifta og lýsing undir efri skápum. Stæði er fyrir uppþvottavél og ísskáp. Gott pláss fyrir eldhúsborð og stóla undir glugga. 
Herbergi I er með nýlegum hvítum innfelldum fataskáp á einum vegg. 
Herbergi II er minna herbergið og er þar hillu innskot.
Stofa og borðstofa er með gluggum á tvo vegu. Svalahurð er út á skjólgóðar svalir til vesturs og sólar nýtur þar við upp úr hádegi og fram á kvöld. Einnig er gluggi á gafli húss sem snýr niður í Fossvoginn.
Baðherbergi er með hvítri innréttingu. Veggfestur spegill og ljós fyrir  ofan. Baðkar með sturtu, hvítur handklæðaofn og upphengt salerni. Stæðir er fyrir þvottavél. Hvítar vegg- og gólfflísar.
Geymsla/Herbergi er niðri í kjallara. Gluggi er á því rými og innstungur. Parket á gólfi. Salerni er í sameign.
Þvottahús er í sameign í kjallara. Tvær þvottavélar og tveir þurrkarar í eigu húsfélags.
Hjólageymsla er í sameign í kjallara.
Sér merkt bílastæði er úti á lóð. Stæði sem fylgir íbúðinni er merkt 1D.
Endurbætur: allar hurðir hafa verið endurnýjaðar, eldhúsinnrétting, tæki, baðherbergi og gólfefni. Þakið var erndurnýjað 2019 sem og þakrennur og niðurföll. Húsið var einnig sprunguviðgert það ár. 2024-2025 var gert við allar svalir, máluð svalargólf og húsið allt málað að utan. Einnig var skipt um alla glugga sem voru lélegir. Sjónvarpskerfi verið endurnýjað sem og dyrasímakerfi. Öll lýsing í sameign er nú með LED ljósum.

Ath. Hluti af innimyndum eru unnar með aðstoð gervigreindar og eru til að gefa fólki sýn á mögulegt skipulag á tómum eignum.

Snælandsskóli
Leikskólinn Fururgrund
HK

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/10/201930.200.000 kr.18.300.000 kr.68.4 m2267.543 kr.Nei
03/12/201214.100.000 kr.18.300.000 kr.68.4 m2267.543 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Áshamar 52
Skoða eignina Áshamar 52
Áshamar 52
221 Hafnarfjörður
103.8 m2
Fjölbýlishús
514
843 þ.kr./m2
87.500.000 kr.
Skoða eignina Arnarsmári 40
Skoða eignina Arnarsmári 40
Arnarsmári 40
201 Kópavogur
108.1 m2
Fjölbýlishús
312
804 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 52
Skoða eignina Áshamar 52
Áshamar 52
221 Hafnarfjörður
93.1 m2
Fjölbýlishús
413
751 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Tómasarhagi 43
Opið hús:27. maí kl 17:00-18:00
Skoða eignina Tómasarhagi 43
Tómasarhagi 43
107 Reykjavík
124.6 m2
Fjölbýlishús
513
935 þ.kr./m2
116.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin