Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.isSnægil 17 íbúð 201 - Vel skipulögð 2-3ja herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýli í Giljahverfi - stærð 70,0 m².Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, svefnherbergi, geymslu sem í dag er nýtt sem herbergi, baðherbergi, þvottahús og sameiginlegar geymslur
Nánari lýsing:Forstofan er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Stofan er björt og rúmgóð með flísum á gólfi.
Eldhúsið er með flísum á gólfi og milli skápa og miklu skápaplássi.
Svefnherbergið er með flísum á gólfi og fjórföldum fataskáp. Úr herberginu er gengið út á vestursvalir með góðu útsýni.
Geymslan/auka herbergið er inn af eldhúsi og með flísum á gólfi. Rýmið er skráð sem geymsla á teikningu en er í dag nýtt sem auka svefnherbergi og er það með opnanlegum glugga.
Baðherbergið er rúmgott með flísum á gólfi og hluta vegggja. Þar er ljós innrétting, walk in sturta, wc, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Þvottahúsið er inn af forstofu með flísum á gólfi og góðri innréttingu.
Sameiginlegar geymslur fylgja eigninni, rúmgott rými er í risinu sem gengið er í af stigapalli, verkfæra skúr er fyrir framan sem og skúr sem notaður er undir hjól/vagna og dekk, allt er þetta sameiginlegt fyrir húsið allt.
Annað:- Eignin er vel skipulögð þar sem allir fermetrar nýtast virkilega vel
- Steyptar svalir eru út úr hjónaherbergi með góðu útsýni
- Snjóbræðsla er í útitröppum
- Fræbær staðsettning þar sem stutt er í leik- og grunnskóla.
Nánari upplýsingar veitir:Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.