Fasteignaleitin
Skráð 25. júní 2026

Grenivellir 16 202

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
87.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
51.900.000 kr.
Fermetraverð
594.502 kr./m2
Fasteignamat
44.700.000 kr.
Brunabótamat
45.300.000 kr.
Mynd af Helgi Steinar Halldórsson
Helgi Steinar Halldórsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2146682
Landnúmer
147924
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Talið í lagi - Ekki skoðað.
Raflagnir
Talið í lagi - Ekki skoðað.
Frárennslislagnir
Talið í lagi - Ekki skoðað.
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Endurnýjað 2021
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
20,2
Upphitun
Hitaveita - Ofnar
Inngangur
Sameiginlegur
Kasa fasteignir 461-2010.

Grenivellir 16 202. Björt og falleg 4 herbergja 87,2 fm íbúð á annari hæð í góðu fjölbýli í nálægð við leik- og grunnskóla ásamt verslun og þjónustu.

Eignin skiptist í forstofu/gang, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi og þrjú svefnherbergi ásamt tveim sér geymslum á jarðhæð og sameiginlegu þvottahúsi og hluta í geymslulofti í risi hússins.


Gangur: Er með parketi á gólfi.
Eldhús: Er með eldri innréttingu, gott skápa pláss. Pláss er fyrir uppþvottavél í innréttingu. Sambyggð eldavél og bakaraofn. Búrskápur. Parket á gólfi
Stofa: Er nokkuð rúmgóð með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf. Þar er innrétting með vaski. Sturta með sturtuglerjum, vegghengt salerni og handklæða ofn. Opnanlegur gluggi er að baðherbergi.
Svefnherbergi: Eru þrjú innan eignar, öll með parketi á gólfum. Góður fataskápur er á hjónaherbergi, þar er einnig gengið út á suðursvalir.
Geymsla: Þrjár geymslur fylgja eigninni. Sér geymsla er í sameigna í jarðhæð og lítil sérgeymsla er í andyri hússins. Í risi hússin er sameiginleg geymsla með annari íbúð í húsinu.
Þvottahús: Er sameiginlegt með öllum íbúðum og er staðsett á jarðhæð.

- Frábær staðsetning rétt við Oddeyrarskóla.
- Stutt í miðbæinn, verslun og þjónustu.
- Snyrtileg sameign.
- Áætlað fasteignamat 2027: 48.000.000.-

Viðhald íbúðar:
- Nýtt parket á alla íbúðina (2022)
- Nýr fataskápur í hjónaherbergi (2022)
- Allir gluggar lakkaðir að innan (2022)
- Allir hurðarkarmar lakkaðir (2022)
- Ný yfirfelld brunavarnarhurð (30) inn í íbúðina (2025)
- Fyrir 2016 var baðherbergið tekið í gegn og leggja nýtt rafmagn. Þá var einnig búið að endurnýja helming af gluggum íbúðarinnar og setja nýja ofna, alla nema þann litla sem er á ganginum við dyrnar inn í íbúðina.

Viðhald sameignar:
- Húsið málað utan og múrviðgerðir (2018)
- Allir gluggar fúavarðir og málaðir ásamt öllum hurðum (2018)
- Ljósleiðari lagður í húsið (2018)
- Nýtt þak og þakrennur (2021)
- Nýtt dyrasímakerfi (2021)
- Allar svalir flotaðar og rakavarðar (2022)
- Nýir gluggar í þvottahús og á geymslugang (2023)
- Gömul tré fjarlægð úr garði (2025)
- Nýr gluggi í stigagang (28 rúður) (2025)
- Útidyrahurð lökkuð (2025)

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/10/201614.850.000 kr.18.900.000 kr.87.3 m2216.494 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraunbær 102D
Skoða eignina Hraunbær 102D
Hraunbær 102D
110 Reykjavík
66 m2
Fjölbýlishús
211
823 þ.kr./m2
54.300.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10a - 102
VRayCam004.jpg
Hafnarbraut 10a - 102
200 Kópavogur
128.2 m2
Fjölbýlishús
413
913 þ.kr./m2
116.990.000 kr.
Skoða eignina Gulaþing 6
Skoða eignina Gulaþing 6
Gulaþing 6
203 Kópavogur
118.3 m2
Fjölbýlishús
413
801 þ.kr./m2
94.800.000 kr.
Skoða eignina Hallgerðargata 5 (307)
Opið hús:30. júní kl 12:15-12:45
Hallgerðargata 5 (307)
105 Reykjavík
105.6 m2
Fjölbýlishús
321
993 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin