Fasteignaleitin
Skráð 30. sept. 2026

Sjávarborg 2F

RaðhúsSuðurnes/Vogar-190
103.2 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
77.900.000 kr.
Fermetraverð
754.845 kr./m2
Fasteignamat
68.000.000 kr.
Brunabótamat
61.400.000 kr.
Byggt 2023
Garður
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2524641
Landnúmer
233149
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
06
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Sjávarborg 2F, 190 Vogar, birt stærð 103.2 fm.    Bókið skoðun sýnum samdægurs!
Fimm herbergja raðhús á einni hæð, á góðum stað í Vogunum. Sjávarborg er hverfi í uppbyggingu með glæsilegu sjávarútsýni.

Skipulag eignar : Forstofa, stofa, borðstofa/eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymsla.

** Fallegt útsýni úr alrými
** 4 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymsla
** Gólfsíðir gluggar og aukin lofthæð (allt að 4 m á hæsta punkti)
** Danfoss stýrikerfi fyrir gólfhita
** Lagnaleið fyrir rafmagnshleðslu og heitan pott
** Vandað harðparket frá Parka og hágæða flísar á baðherbergi


Nánari upplýsingar veita:
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 698-6655, tölvupóstur pall@allt.is.
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur sigurjon@allt.is.

 
Nánari lýsing eignar
Forstofa
 er flísalögð með rúmgóðum fataskápum og hurð inn á gang.
Stofa og borðstofa eru í opnu alrými með eldhúsi. Rúmgóð stofa með útgengi á sólpall klæddan fallegu lerki. Lofthæð innan eignarinnar nær allt að fjórum metrum á hæsta punkti sem setur mikinn svip á rýmið. Innfelld lýsing er þar sem við á. Sólpallurinn er timburklæddur með skilrúmi milli íbúða.
Eldhúsið er opið við stofu, með ljósgrárri melamín-innréttingu og svartri kvarsborðplötu. Með hverri íbúð fylgir span helluborð, ofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti.
Svefnherbergin eru fjögur talsins, öll með fataskápum í sama lit og efni og eldhúsinnrétting. Parket er á gólfum.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með 60x60 flísum, með upphengdu salerni, sturtuklefa og innréttingu við vask með mjúklokun á skúffum, auk tengja fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er staðsett fyrir ofan baðherbergi (stigi upp fylgir) og má einnig nýta sem svefnloft. Parket er á gólfum.
Verönd og lóð: Lóð er tyrfð. Verandir við bakhlið eru úr lerki með skjólvegg á milli húsa. Stéttir og bílastæði við aðkomuhlið eru hellulögð með snjóbræðslu í gangstéttum. Bílastæði er fyrir framan hvert hús.

Frágangur innanhúss
Innveggir
eru smíðaðir úr timburgrind, klæddir plötum, og uppfylla kröfur um lofthljóðeinangrun milli herbergja innan íbúðar.
Gólfefni er vandað harðparket Light Cracked Oak 8 mm frá Parka.
Baðherbergi er flísalagt með 60x60 cm flísum á gólfi og veggjum, loft er málað. Geymsluloft er fyrir ofan baðherbergi.
Innréttingar eru vandaðar, frá Parka – eldhús-, bað- og fataskápainnréttingar úr melamíni.
Innihurðar eru hvítar, yfirfelldar, frá Parka.
Rimlagluggatjöld fylgja öllum gluggum.
Íbúðinni fylgir span helluborð, bökunarofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti.

Verið velkomin í Grænabyggð – Vogum — þar sem lífsgæði mæta náttúrunni!
Í hjarta fjölskylduvæns hverfis í sveitafélaginu Vogar bíður þessi íbúð eftir nýjum eigendum. Grænabyggð og samfélagið státar af öflugri menntun fyrir börn og ungmenni, með áformum um nýjan leikskóla og stækkun grunnskóla á svæðinu. Íþróttafélagið Þróttur býður upp á fjölbreytt tómstundastarf og nálægð við strandlengju, gönguleiðir og golfvöll gefur færi á heilbrigðum lífsstíl allt árið um kring. Aðeins er um 10 – 15 mínútna akstur á höfðuborgarsvæðið, Bláa lónið og Keflavíkurflugvöll. Þetta er tækifæri til að fjárfesta í framtíðinni — bæði fyrir heimilið og lífið sjálft. Vertu í sambandi við okkur og bókaður skoðun, ALLT fyrir þig.



Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/02/202455.700.000 kr.71.000.000 kr.103.2 m2687.984 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
ALLT FASTEIGNIR ehf
http://www.allt.is

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grænaborg 14
Hleðslustöð
Skoða eignina Grænaborg 14
Grænaborg 14
190 Vogar
106.2 m2
Fjölbýlishús
514
621 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Dalsbraut 1K
Skoða eignina Dalsbraut 1K
Dalsbraut 1K
260 Reykjanesbær
85.4 m2
Fjölbýlishús
413
732 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Skoða eignina Grænaborg 16
Skoða eignina Grænaborg 16
Grænaborg 16
190 Vogar
83.9 m2
Fjölbýlishús
413
715 þ.kr./m2
60.000.000 kr.
Skoða eignina Sjávarborg 4B
Á einni hæð
Skoða eignina Sjávarborg 4B
Sjávarborg 4B
190 Vogar
91.4 m2
Raðhús
413
743 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin