Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163/bjarni@remax.is) kynnir tvær tveggja herbergja íbúðir í þríbýlishúsi að Hverfisgötu 66a Reykjavík. Sérinngangur í báðar eignir. Íbúðirnar sem eru á fyrstu hæð og í kjallara hússins eru með eitt fastanúmer, samtals 81,9fm. Mjög góðir tekjumöguleikar.
Bókið skoðun hjá Bjarna Blöndal lgf. // 662-6163 // bjarni@remax.is
Nánari lýsing:
Íbúð á 1.hæð er 2ja herbergja, 45,8fm með sérinngangi að framan.
Komið er inn í netta flísalagða forstofu og þaðan komið inn í opið rými með stofu og eldhúsi.
Stofan er með parketi á gólfi, rúmgóð með stórum gluggafronti.
Eldhúsið er flísalagt, eldhúskrókur með setuborði, flísar milli skápa, háfur.
Svefnherbergið er parketlagt með stórum fataskáp.
Baðherbergið er með flísalögðu gólfi og hluta veggja, upphengt wc, sturta, handklæðaofn, gluggi.
Íbúð í kjallara er 2ja herbergja, 31,6fm með sérinngangi bakatil.
Stofan er flísalögð með glugga.
Eldhúsið er með flísalögðu gólfi, flísar milli skápa, tengi fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergið er flísalagt, lítill gluggi.
Baðherbergi er flísalagt, baðkar, handklæðaofn, lítill gluggi.
Í kjallara er 4,5 fm sérgeymsla & sameiginlegt þvottahús.
Húsið sjálft er fallegt og var að miklu leyti endurnýjað á síðustu árum, svo sem lagnir og rafmagn.
Frábært tækifæri fyrir þá sem vilja eignast útleiguíbúðir eða búa í einni íbúð og leigja aðra út.
Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar, sjá upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.