Fasteignaleitin
Skráð 15. okt. 2025
Deila eign
Deila

Reynihlíð 15b

RaðhúsNorðurland/Akureyri-604
98.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
75.900.000 kr.
Fermetraverð
768.997 kr./m2
Fasteignamat
60.050.000 kr.
Brunabótamat
56.850.000 kr.
SS
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2021
Garður
Útsýni
Sérinng.
Fasteignanúmer
2510920
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
2021
Raflagnir
2021
Frárennslislagnir
2021
Gluggar / Gler
2021
Þak
2021 - sjá yfirlýsingu húsfélags
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
13,96
Upphitun
Hitaveita - Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Reynihlíð 15b - Falleg 4ra herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð með 15 m² geymsluskúr á baklóð við Reynihlíð í Hörgársveit - stærð íbúðar er 98,7 m²


Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu auk geymsluskúrs. 

Forstofa og gangur eru með harð parketi á gólfi og tvöföldum innfelldum skáp.
Eldhús, falleg hvít L-laga innrétting með svörtum tækjum og vask. Ísskápur með frysti og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar. 
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem er ljóst harð parket á gólfi og loft tekin upp og með innfelldri lýsingu. Úr stofu er gengið út á steypta verönd með heitum potti/skel og um 15 m² geymsluskúr. Snjóbræðsla eru í hluta af verönd.
Svefnherbergin eru þrjú, öll ágætlega rúmgóð, 9,2 , 11,3 og 12,6 m², með ljósu harð parketi á gólfi, innfelldri lýsingu og fataskápum. Í öðru barnaherberginu er fellistigu upp á geymsluloft sem er yfir herberginu. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja. Hvít innrétting, rúmgóð walk-in sturta með innfeldum Hansa tækjum, upphengt wc og handklæðaofn. Góð hvít innrétting er fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Innfelld lýsing er í lofti. 
Geymsla innan íbúðar er skráð 5,2 m² að stærð og þar er harð parket á gólfi. Innst í geymslunni eru inntökin og hitaveitugrindin.

Lóð
- Á baklóðinni er steypt verönd með heitum potti/skel sem klædd er með lerki og um 15 m² geymsluskúr, með steyptu gólfi en óeinangraður. Hitalagnir eru í hluta af veröndinni. 
- Fyrir framan húsið er steypt stétt og bílaplan með hitalögnum í stærstum hluta. 
- Skjólveggir beggja vegna eru klæddir með svartri smábáru.
- Ruslatunnuskýli er á framlóð.

Annað
- Vönduð gólfefni frá Harðviðaval, harð parket og flísar.
- Innfelld lýsing er í loftum í helstu rýmum
- Loft eru tekin upp í eldhúsi, stofu, gangi og forstofu. 
- Veggfastir auka skápar í forstofu, eldhús og svefnherbergjum fylgja með við sölu.
- Varmaskiptir á neysluvatni.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Eignin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/05/202344.650.000 kr.68.400.000 kr.98.7 m2693.009 kr.
18/01/20214.880.000 kr.42.500.000 kr.98.7 m2430.597 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kjarnagata 63
Bílastæði
Skoða eignina Kjarnagata 63
Kjarnagata 63
600 Akureyri
93.3 m2
Fjölbýlishús
413
792 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Skoða eignina Vaðlatún 14
Bílskúr
Skoða eignina Vaðlatún 14
Vaðlatún 14
600 Akureyri
118.5 m2
Raðhús
413
632 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarlundur 3 G
Heiðarlundur 3 G
600 Akureyri
117.2 m2
Raðhús
514
665 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Kristjánshagi 1
Skoða eignina Kristjánshagi 1
Kristjánshagi 1
600 Akureyri
105.5 m2
Fjölbýlishús
413
710 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin