Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu Borgarrima 9C, Reykholti, Bláskógabyggð, sem er nýleg 104,0 fm endaíbúð í raðhúsi í nýju hverfi í Reykholti í Bláskógabyggð.Nánari lýsing.
Forstofa þar er skápur
Þrjú rúmgóð svefnherbergi öll með skápum.
Baðherbergi með innréttingu, upphengdu salerni og walk in sturtu með sturtugleri.
Þvottahús er með góðri innréttingu og vaski.
Eldhús með vandaðri innréttingu auk hefðbundinna eldhústækja er innfeldur ísskápur, uppþvottavél.
Rúmgóð stofa með útgengi út á timburverönd.
Góð timburverönd, með skjólveggjum milli íbúða.
Húsið er byggt úr timbri árið 2025, klætt að utan með gráu báruáli og svörtu bárujárni á þaki. Gluggar með álkápu. Gólfhitalagnir með stýringum. Hljóðvistardúkur er í loftum með innfeldri LED lýsingu. Hvítar innihurðir. Harðparket er á gólfum í herbergjum og alrými. Flísar á forstofu, baðherbergi og þvottahúsi. Vélræn loftræsting í eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergi.
Þökulögð lóð. Stór innkeyrsla með mulningi.
Hér er um að ræða nýlegt fullfrágengna enda íbúðí raðhúsi í nýju hverfi, með leik og grunnskóla í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996 steindor@husfasteign.is ,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.