Fasteignaleitin
Skráð 23. júlí 2026

Ásatún 8

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
83.5 m2
2 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
57.900.000 kr.
Fermetraverð
693.413 kr./m2
Brunabótamat
43.150.000 kr.
Byggt 2011
3. hæð
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
23107715
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Einar Pálsson lgf. og Borg fasteignasala kynna vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð (íbúð 304) í góðu fjölbýli að Ásatúni 8, 600 Akureyri ásamt sérgeymslu á jarðhæð hússins og sameiginlegri vagna/hjólageymslu. Svalir til suðurs/vesturs og bílastæði norðan/austan við hús ásamt sorpgerði.

Mjög fallegt útsýni er úr íbúðinni og stórar svalir til suð- vesturs.
Hiti í gólfi. 


Lýsing eignar:
Forstofa er með flísum á gólfi og er fastur fataskápur í forstofu.
Þvottaherbergi er við forstofu með flísum á gólfi ásamt vinnuborði með vask.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parket á gólfi og föstum fataskápum.
Eldhús er opið við stofu, með parketi á gólfi. Eldhúsinnrétting er með efri- og neðri skápum og flísum á milli skápa. Útgengt er á stórar svalir alls 11,8 fermetrar til suð- vesturs úr stofu.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum inn í sturtu, upphengdu klósetti,  ágætis innréttingu með flísum undir spegli við vask. 
Sérgeymsla er í kjallara hússins alls 6,8 fermetrar ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.

Gengið er inn í íbúðina svalargangi. Hiti er í gólfum allrar íbúðar sem er með parketi á gólfi nema forstofa, þvotta- og baðherbergi sem er með flísum á gófli. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er í kjallara hússins ásamt sérgeymslu (0107) alls 6,8 m2 að stærð. Svalir eru 11,8 m2. Íbúðin er 83,5 m2, samkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands.

Húsið er 3 hæða steinsteypt fjölbýlishús. Í húsinu eru 11 íbúðir. Útveggir er 30 cm þykkir, gerðir úr 18 cm steyptum vegg og 10 cm einangrun, veggir múrhúðaðir að innan en eru steinaðir að utan með ljósu efni með svörtum yrjum. Snjóbræðsla er á tröppum, stigapöllum og við sorpgerði. Sérgeymsla og sameign er staðsett á jarðhæð hússins. Steinsteypt sorpgerði er norðan/austan við húsið.

Allar nánari upplýsingar veitir Einar Pálsson, löggiltur fasteignasali í síma 857-8392 eða á netfanginu einar@fastborg.is

-Eignin er í einkasölu
-Ljósleiðari tengdur inn í íbúð

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnun.ar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Asparlaut (01-05) 1
Opið hús:27. júlí kl 17:00-18:00
Asparlaut (01-05) 1
230 Reykjanesbær
99.8 m2
Fjölbýlishús
312
700 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut (01-04) 1
Opið hús:27. júlí kl 17:00-18:00
Asparlaut (01-04) 1
230 Reykjanesbær
78.5 m2
Fjölbýlishús
21
750 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut (01-03) 1
Opið hús:27. júlí kl 17:00-18:00
Asparlaut (01-03) 1
230 Reykjanesbær
99.9 m2
Fjölbýlishús
32
700 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Meðalholt 5
Opið hús:28. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Meðalholt 5
Meðalholt 5
105 Reykjavík
80.6 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
311
867 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin