Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna: Glæsilegt einbýli við Grímshaga 8, 107 Reykjavík með aukaíbúð. Glæsileg 285,6 fermetra fjölskylduvæn eign að Grímshaga 8 með rúmgóðum bílskúr sem var byggður við eftir á. Eignin hefur verið endurnýjuð á glæsilegan máta og má líkja við nýbyggingu á rótgrónum stað. Um er að ræða afar vel skipulagða og glæsilega eign þar sem nútímatækni og þægindi mætast.
https://3da.is/betri-stofan/grimshagi-8Húsið er staðsett aftarlega á lóð sem gefur gott rými og næði. Með eigninni fylgir aukaíbúð sem nýtist frábærlega til útleigu eða fyrir stóra fjölskyldu og er rúmlega 50 fermetrar með sérinnangi.
Aðalhæð einkennist af opnu og björtu rými sem samanstendur af
stofu og borðstofu, eldhús, þvottahús, baðherbergi, anddyri og innangengt í bílskúr.Stór og sólríkur pallur vísar til suðurs og er gengið út á hann frá betri stofunni. Stórir gluggar opna rýmið og hleypa mikilli birtu inn. Grasflöt er fram af húsinu út að götu. Mjög rólegur botnlangi.
Bílskúr: Rúmgóður 48 fermetrar og er á hæðinni með miklu skápaplássi og glæsilegri gufu.
Þvottahúsið er sérstaklega vel skipulagt fyrir stóra fjölskyldu, með 5 „cubbies“ hillu fyrir hvern og einn. Úr þvottahúsi er hægt að ganga í bakgarð.
Eldhúsið er vel útbúið með tveimur ofnum og góðum eldhúskrók með innbyggðum bekk. Gott skápapláss og vandað til verka.
Á hæðinni er einnig anddyri/forstofa með gestasalerni sem var nýlega endurnýjað.
Efri hæð: Á efri hæðinni eru alls
5 svefnherbergi. Hjónaherbergið er með sér baðherbergi (en-suite) með sturtu.
Fjögur önnur svefnherbergi eru á hæðinni auk
baðherbergis með sturtu.
Þaksvalir eru á efri hæðinni.
Fyrir aftan húsið er skjólsælt svæði með heitum potti (hitaveitutengdur) og rúmgóðri geymslu með ofni. Nýlegt grindverk var sett upp sem tryggir gott næði.
Húsið er útbúið snjallkerfinu ABB @Home sem stýrir ljósum, heitum potti og bílskúrshurð í gegnum app. Innkeyrslan er einstaklega rúmgóð með plássi fyrir 7 bíla og hleðslustöð er til staðar.
Aukaíbúð:
Með húsinu fylgir
61,9 fm íbúð sem er á sér fastanúmeri en selst sem hluti af heildinni.
Íbúðin samanstendur af stofu, eldhúsi, baðherbergi og svefnherbergi.
Hún hentar fullkomlega til útleigu eða sem sjálfstæð eining fyrir uppkomna unglinga.
Nánari upplýsingar og bókanir í skoðun:
Jason Kristinn Ólafsson
Fasteignasali
Sími: 775 1515
Netfang: jason@betristofan.is