Fasteignaleitin
Opið hús:23. mars kl 17:00-17:30
Skráð 18. mars 2026

Sogavegur 122

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
187.8 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
134.900.000 kr.
Fermetraverð
718.317 kr./m2
Fasteignamat
133.050.000 kr.
Brunabótamat
90.600.000 kr.
Mynd af Ólafur H. Guðgeirsson
Ólafur H. Guðgeirsson
löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2035775
Landnúmer
108458
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ástand ekki vitað
Raflagnir
Ástand ekki vitað
Frárennslislagnir
Ástand ekki vitað
Gluggar / Gler
Ástand ekki vitað
Þak
Ástand ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sólpallar
Upphitun
Ofnar, ástand ekki vitað
Inngangur
Margir inngangar
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Húsið er byggt í nokkrum áföngum á ýmsum tímum. Seljandi bendir tilboðsgjafa á að kynnar sér vandlega ástand hússins og byggingaraðferðir mismunandi byggingarhluta. TImburklæðning utan á húsinu er í nokkrum tilfellum farin að láta verulega á sjá. Frágangur hússins er ekki í samræmi við samþykktar teikningar en meðal annars er megin baðherbergi ekki á þeim stað sem upphafleg teikning gerir ráð fyrir.
Kvöð / kvaðir
Lóðarleigusamningur gildir í 75 ár frá 1.febrúar 2015.
Eignamiðlun og Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, LGFS., kynna rúmgott og mjög vel nýtt einsbýlishús á einni hæð við Sogaveg. Heildarstærð hússins samkvæmt fasteignamati er 187,8 fermetrar, þar af er bílskúr 36 fermetrar. Í húsinu eru í dag fjögur stór svefnherbergi og tvö baðherbergi, en hægt að skipta upp herbergjum. Lóðin er 482 fermetrar með stórum afgirtum slkjólgóðum sólpalli og heitum potti. Seljandi hefur áhuga á skiptum á rúmgóðri íbúð í hverfinu.

Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is sem einnig sýnir eignina.


Ekið er að húsinu eftir innkeyrslu frá Sogavegi. Innkeyrslan liggur að bílskúr hússins og einnig að fleiri húsum sem standa fjær götunni. Bílastæði er framan við bílskúr, en einnig eru yfirleitt næg bílastæði meðfram Sogavegi.

Gengið er inn um inngang á framhlið hússins sem snýr að Sogavegi, en einnig er hægt að fara inn gegnum bílskúrinn. Við aðalinngang er er komið inn í forstofu með flísum á gólfi og fatahengi. Þaðan er gengið í mjög rúmgott hol þar sem eldhús er til hægri, herbergi í framhaldi og baðherbergi við enda holsins. Holið er í dag nýtt sem borðstofa. Til vinstri við dyr úr forstofu inn í hol er gengið í rými þar sem er stórt herbergi með sér flísalögðu baði með sturtu lítilli innréttingu undir vaski, fínasta aðstaða fyrir ungling. Til vinstri úr holi er gengið niður eina tröppu í stofu og „garðstofu“ sem hefur verið tengd við húsið og er hluti stofunnar. Gluggar eru á allri hlið garðstofunnar, út að skjólgóðum afgirtum palli þar sem er pottur og fínasta grillaðstaða. Garðstofan, og stofan sem er opin til garðstofu, eru þess vegna mjög bjartar og vistlegar.

Í enda garðstofu eru dyr í bílskúrinn, sem er 36 fermetra byggður 1974. Skúrinn er flísalagður, með nýlegri hurð, aðstöðu fyrir þvottavélar, og rúmgóðu herbergi í innri enda. Úr enda garðstofu eru sömuleiðis dyr að megin baðherbergi hússins sem einnig má ganga í úr holi. Tvö rúmgóð herbergi eru í innri enda hols við hlið baðherbergis. Samkvæmt teikningu voru þrjú herbergi þarna og er þess vegna hægt að bæta við herbergi ef vilji er til.  Baðherbergið er rúmgott, flísalagt með baðkari, innréttingum kringum vask og skápum.
Eldhús er rúmgott og bjart, í horni hússins með gluggum í tvær áttir, rúmgóðar viðarinnréttingar með steini á borðum, steinn á gólfi og búr í enda eldhússins. Gott vinnupláss og skápapláss, ásamt rými fyrir matarborð.
Parket er á flestum gólfum, nema í garðstofu eru sérlega fallegar rauðar leirflísar, flísar á baðherbergjum og bílskúr, og steinflísar á eldhúsi.
Húsið er timburhús, byggt upphaflega 1961 en bætt við það í nokkrum áföngum, klætt að utan með standandi borðaklæðningu. Húsið er ekki að öllu leiti í samræmi við samþykktar teikningar. Bílskúrinn er byggður 1974.
Frárennsli var myndað 2021, raflagnir yfirfarnar og gerðar afmarkaðar breytingar fyrir nokkru síðan. Þakkantur og þak langfært að hluta og málað 2023, gluggar málaðir á sama tíma. Skipt um hluta grindverks 2020, málað 2025. Múrviðgerðir á bílskúr við pottinn 2025 og viðgerð og sett Equitone plata sett í stað timburklæðningar á hluta veggjarins sem snýr út á pallinn. Tvö herbergi parketlögð 2025. Herbergi inn af bílskúr múrviðgert og málað 2025.

Vel skipulagt og vel nýtt einbýlishús ásamt bílskúr á einni hæð í einu af vinsælustu hverfum Reykjavíkur.  Örstutt í alla þjónustu og stutt í útivist í Elliðaárdalnum og Fossvoginum.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
03/02/201547.050.000 kr.48.700.000 kr.187.8 m2259.318 kr.Nei
14/03/201478.600.000 kr.50.000.000 kr.187.8 m2266.240 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1974
36 m2
Fasteignanúmer
2035775
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
13.750.000 kr.

Myndir (56)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hnjúkamói 16 íb. 502
Bílskúr
Opið hús:21. mars kl 13:00-13:30
Hnjúkamói 16 íb. 502
815 Þorlákshöfn
157 m2
Fjölbýlishús
412
700 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Hvannarimi 16
Opið hús:22. mars kl 15:00-15:30
Skoða eignina Hvannarimi 16
Hvannarimi 16
112 Reykjavík
177.8 m2
Raðhús
614
753 þ.kr./m2
133.900.000 kr.
Skoða eignina Garðatorg 2
Bílastæði
Skoða eignina Garðatorg 2
Garðatorg 2
210 Garðabær
143.3 m2
Fjölbýlishús
322
1011 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Hagamelur 48
Bílskúr
Skoða eignina Hagamelur 48
Hagamelur 48
107 Reykjavík
175.9 m2
Hæð
614
881 þ.kr./m2
154.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin