LIND fasteignasala kynnir þriggja herbergja 91,6 fm íbúð á 1. hæð með rúmgóðum afgirtum palli við Funalind 1 í Kópavogi.
Bjart alrými, rúmgóð svefnherbergi og þvottahús innan íbúðar. Nýleg blöndunartæki eru í íbúðinni og næg bílastæði eru umhverfis húsið. Fjölskylduvænt hverfi, en m.a. eru matvöruverslanir, grunn- og leikskóli í göngufæri. Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, samliggjandi borðstofu/stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Flísar á gólfi, innrétting með nýlegri borðplötu og nýlegum vaski.
Stofa/ borðstofa: Björt og opin, parket á gólfi. útgengt á verönd með tveimur pöllum.
Baðherbergi: Hvítar flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting, speglaskápur, baðkar með sturtu.
Hjónaherbergi: Rúmgott, parket á gólfi, fataskápur með miklu plássi.
Svefnherbergi: Parket á gólfi, fataskápur.
Geymsla: Í kjallara, skráð 4,2 fm ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.
Allar upplýsingar um eignina veitir Tara Sif Birgisdóttir í síma 847 8584 / tara@fastlind.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.