Helgafell fasteignasala kynnir nýja þriggja herbergja fullbúna íbúð á fimmtu hæð merkt 0503 við Áshamar 5-7 í Hafnarfirði.
Birt stærð: 91,9fm., þar af er sér geymsla 4,9fm.Verktaki: JE Skjanni ehf.Heimasíða verkefnis hérLýsing:Anddyri: Harðparket á gólfi og skápur.
Eldhús: Opið við stofu - L laga eldhúsinnrétting frá Kappa með góðu skápaplássi. Ísskápur, uppþvottavél, helluborð, gufugleypir og bakaraofn í vinnuhæð frá Smith&Norland.
Stofa: Rúmgóð stofa með útgengi á suðvestur 10,7fm. svalir.
Svefnherbergi: Harðparket á gólfi. Mikið skápapláss. Rennihurð inn í svefnherbergi.
Baðherbergi: Rúmgott og flísalagt í hólf og gólf (flísar frá Agli Árnasyni), upphengt salerni, "Walk-in" sturta og pláss fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
4,9 fm. sérgeymsla í sameign á neðstu hæð.
Íbúðin er með gólfhita og er afhent fullbúin með gólfefnum, harðparket á gólfi og flísar í blautrýmum. Einangrun undir gólfhitalagnirnar og anhýdrít ílögn yfir gólfhitalagnirnar.
Endanlegur frágangur gólfefna er hluti af heildarhljóðvist hússins sem tryggir hljóðvist, vandað undirlag og réttan frágang gólfefna.Hvítar 90cm yfirfelldar hurðir frá Parka með 90cm ljósopi.
Dyrasímakerfi með myndavél uppsett.
Ljósleiðari kominn í hús og inn í smáspennutöflu hverrar íbúðar.
RJ45 nettengi eru uppsett og tengd inn í smáspennutöflu. Loftnet er komið inn í smáspennutöflu.
Í sameign er
hjóla- og vagnageymsla.Teppalagðir stigagangar með góðri lýsingu. Glerlokun með hurð frá stigagangi inn á íbúðarpalla á hverri hæð.
Lyfta gengur inn í íbúðarpallana á hverri hæð.
Vandaðar brunahurðir frá Parka inn í íbúðirnar.
Sameiginleg 95 stæði á lóðinni.
Búið er að leggja rafmagnslagnir að hluta af stæðunum án tengingar, sem hugsaðar eru fyrir rafmagnsbíla.
ATH: Myndir af íbúðinni geta verið úr samskonar eða svipaðri íbúð.
ATH: Svalalokanir sem sjást á tölvugerðri mynd eru ekki afhentar með íbúðunum.
Barnvænt hverfi, undirgöng nálægt húsinu og er því góð gönguleið í skóla- og leikskóla. Ekki þörf að fara yfir umferðargötu á leið í skólann. Nýr leikskóli í sömu götu.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við sölumenn Helgafells fasteignasölu.